SKÝRSLAN: Þróttur meistari í Inkasso-deildinni
Hvað réði úrslitum?
Þróttur er bara í öðrum gæðaflokki. Ekki nóg með að þær séu einfaldlega betri í fótbolta þá er hugarfarið þeirra til fyrirmyndar. Mæta í leikinn frá fyrstu mínútu á meðan FH sem hefði getað tryggt sér sæti í efstu deild voru bara týndar í fyrri hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Linda Líf Boama
Þvílíkur leikmaður. Var algjörlega frábær í dag. Skoraði fyrsta markið og lagði upp annað. Skapaði fullt af færum fyrir liðsfélagana og var mjög ógnandi. Komin með 20 mörk í deildinni
2. Lauren Wade
Mjög flottur leikur hjá henni í dag. Með stoðsendingu í fyrsta markinu og skoraði annað markið. Hefði hæglega getað skorað fleiri mörk hér í dag.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins. FH týndar í byrjun og Þróttur nýtti sér það svo sannarlega. Eftir þetta mark fannst mér aldrei spurning í hvaða átt þessi leikur þróaðist
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur er meistari í Inkasso-deild kvenna! FH-ingar eru enn í öðru sætinu og geta tryggt sér sæti í efstu deild með sigri í næsta leik.
Vondur dagur
Úff ætli ég setji þetta ekki bara á FH-liðið í heild sinni í fyrri hálfleik. Þær mættu einfaldlega ekki til leiks og voru lentar 2:0 undir eftir 10 mínútur. Þetta er það sama og gerðist í síðasta leik gegn Haukum (þá var reyndar 3:0 eftir 10 mín.) Fyrir lið sem getur tryggt sæti sitt í efstu deild með sigri þá finnst mér svona byrjun bara ekki boðleg.
Dómarinn - 8
Bara fínn leikur hjá tríóinu. Þurftu svosem ekki að taka mikið af erfiðum ákvörðunum en mér fannst þetta bara flott.



