SKÝRSLAN: Botnliðið stríddi Íslandsmeisturunum
Hvað réði úrslitum?
Gæðamunurinn á þessum tveimur liðum er bara allt of mikill. Breiðablik var nánast allan fyrri hálfleik með boltann. Þær duttu töluvert niður í seinni hálfleik og lítið gekk upp hjá þeim. HK/Víkingur varðist hinsvegar vel og fékk aðeins eitt mark á sig.
Bestu leikmenn
1. Audrey Rose Baldwin (HK/Víkingur)
Hún var frábær í markinu í dag og var með þvílíkar vörslur. Hún bjargaði HK/Víking oft á tímum á síðustu stundu.
2. Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Fyrri hálfleikur hjá henni og Áslaugu var virkilega flottur á köntunum. Þær mega deila þessu saman. Dró aðeins af þeim í seinni hálfleik eins og öllu Blikum, en þær voru með flottar fyrirgjafir inn í vítateig HK/Víkings.
Atvikið
Ekkert sérstakt atvik sem átti sér stað í kvöld. Eftir líflegan fyrri hálfleik hjá Blikum dró aðeins af þeim í seinni hálfleik, þá gaf HK/Víkingur í.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að HK/Víkingur er ennþá á botninum með 7 stig. Breiðablik eltir Val ennþá á toppnum og má búast við hreinum úrslita leik í næstu umferð þegar Blikar taka á móti Val.
Vondur dagur
Ekkert neitt sem stóð upp úr. HK/Víkingur hinsvegar komst varla yfir miðju í fyrri hálfleik en þær spiluðu með fimm manna vörn. Þær voru mögulega að leggja upp með að vera þéttar, sem virkaði ágætlega þar sem þær fengu bara eitt mark á sig.
Dómarinn - 7
Ekki erfiður leiku að dæma. Guðmundur mátti stundum láta leikinn fljóta aðeins betur en dómaratríóið var heilt yfir ágætt í kvöld.


