SKÝRSLAN: Öruggt gegn skítlélegum andstæðingum
Hvað réði úrslitum?
Íslenska liðið er mörgum klössum betra en Lúxemborg. Á einhvern ótrúlegan hátt var ekkert skorað í fyrri hálfleiknum en um leið og ísinn var brotinn var þetta aldrei spurning.
Bestu leikmenn
1. Willum Þór Willumsson
Bestur á vellinum í dag. Hrikalega góður leikmaður sem verður lykilhlekkur í A-landsliðinu ef fram heldur sem horfir.
2. Jón Dagur og Mikael
Jón Dagur skoraði algjört konfektmark í leiknum og Mikael átti svakalega góða innkomu.
Atvikið
Mikael Neville Anderson kom inn í hálfleik og var búinn að vera á vellinum í örfáar mínútur þegar hann krækti í vítaspyrnu. Af vítapunktinum skoraði Ísland fyrsta mark leiksins.
Hvað þýða úrslitin?
Fyrsti leikur U21 landsliðsins í undankeppni EM. Skyldusigur gegn Lúxemborg sem ógnaði aldrei marki Íslands í leiknum. Næsti leikur er gegn Armeníu á mánudag. Þar á að bæta við þremur stigum til viðbótar.
Vondur dagur
Það vantaði upp á sóknarleikinn í fyrri hálfleiknum og illa var farið með góð tækifæri. Jónatan Ingi og Sveinn voru ekki að finna sig en vondi dagurinn fer á Lúxemborg. Miðað við þessa frammistöðu eru margir vondir dagar framundan hjá liðinu í riðlinum.
Dómarinn - 4
Lettneski dómarinn var með ýmsar furðulegar ákvarðanir en botninum var náð í fyrri hálfleik er dæmd var rangstaða úr innkasti! Það er náttúrulega ekki boðlegt!



