Fotbolti.net
Kristófer Jónsson
Kristófer Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Meistaravellir
Hæfilega mikil rigning. Frábærar aðstæður.
KR
KR
3 - 2
FH
FH
0 - 110' Steven LennonTobias Bendix Thomsen 16'1 - 1Finnur Tómas Pálmason 18'2 - 12 - 249' Steven LennonPálmi Rafn Pálmason (víti) 54'3 - 2
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: 1627 manns
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Evrópuörlög FH ráðast í síðustu umferð

Hvað réði úrslitum?

Erfitt að segja. KR-ingar voru líklegast heilt yfir betri í leiknum en FH-ingar gáfu hins vegar ekkert eftir. Sigurmark KR kom úr vítaspyrnu sem að Óskar Örn fiskaði og er alveg hægt að setja spurningamerki við þann dóm.

Bestu leikmenn

1. Skúli Jón Friðgeirsson

Þetta var síðasti heimaleikur Skúla fyrir KR og kom ekki til greina fyrir hann að eiga ekki draumaleik í dag. Algjört akkeri á miðjunni og dreifði spilinu vel. Frábær endir hjá frábærum leikmanni.

2. Steven Lennon

Skorar bæði mörk FH í dag og var þeirra hættulegasti maður í dag. Á ennþá séns á markakóngstitlinum, ásamt nokkrum öðrum.

Atvikið

Vítaspyrnudómurinn. Sigurmark KR kemur uppúr henni og voru FH-ingar vægast sagt ósáttir við Erlend þar. Dæmi hver fyrir sig af endursýningunni.

Hvað þýða úrslitin?

KR-ingar voru búnir að tryggja sér titilinn fyrir þessa umferð og eru Íslandsmeistarar árið 2019. FH-ingar hefðu getað gulltryggt Evrópusæti í dag en þurfa að gera það í síðustu umferðinni.

Vondur dagur

Brandur Olsen fær þennan titil hiklaust. Byrjaði leikinn á að æsa aðeins í stuðningsfólki KR þegar að FH komst yfir og beit karma hann heldur betur í rassinn eftir það. Stuttu síðar var KR komið 2-1 yfir og Færeyjingurinn kominn með alla stúkuna á móti sér. Sást lítið sem ekkert í leiknum eftir það.

Dómarinn - 5

Ég get nú ekki gefið Erlendi háa einkunn í dag. Margar skrítnar ákvarðanir hjá honum og þá er vítaspyrnudómurinn eitt stórt spurningamerki. Málarinn oft verið meira sannfærandi en í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.