SKÝRSLAN: Stjörnusigur í Árbænum!
Hvað réði úrslitum?
Gæði Stjörnunnar komu í ljós í seinni hálfleik. Eftir jafnan fyrri hálfleik settu gestirnir í næsta gír og kláraðu leikinn á 10 mínútna kafla.
Bestu leikmenn
1. Hilmar Árni Halldórsson
2 mörk og stoðsending. Fiskaði líka vítið. Virkilega góð frammistaða hjá Hilmari í dag. 10/10.
2. Eyjólfur Héðinsson
Eyjólfur var flottur á miðjunni í dag. Fyrirliðinn vann vel fyrir liðið og stýrði tempóinu í spilinu afar vel.
Atvikið
Klaufalegt sjálfsmark Elís Rafn hefði geta reynst ansi dýrkeypt fyrir gestina en sem betur fer steig liðið upp og kláraði leikinn. Rosaleg lokaumferð framundan þar sem Evrópudraumurinn lifir.
Hvað þýða úrslitin?
Evrópudraumur Stjörnunnar lifir þar sem FH tapaði gegn KR. Fylkismenn sigla nú lygnan sjó og síðasti leikur þeirra aðeins upp á stoltið.
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir Helga Sig og liðið í heild. Komast í 1-0 en brotna algjörlega niður eftir það. Evrópusæti hefði verið möguleiki fyrir lokaumferðina með sigri hér í dag.
Dómarinn - 6
Pétur var allt í lagi í kvöld. Var með vítaspyrnuna á hreinu en spurning með línuna sem hann setti í leiknum. Helgi Sig var allavega ekki sáttur og lét fjórða dómara leiksins nokkrum sinnum heyra það.



