SKÝRSLAN: Blikar gulltryggja sér Evrópusætið
Hvað réði úrslitum?
Sanngjörn úrslit í miklum baráttuleik.
Bestu leikmenn
1. Nökkvi Már Nökkvason
Spilaði sinn fyrsta byrjunarliðsleik með ÍBV og stóð upp úr í dag. Virkilega duglegur á miðjunni, hljóp mikið og sinnti varnarhlutverkinu vel.
Frábær leikur hjá þessum efnilega leikmanni.
Frábær leikur hjá þessum efnilega leikmanni.
2. Höskuldur Gunnlaugsson
Skoraði gott mark og var öflugur á vinstri kantinum.
Atvikið
Mark ÍBV.
Gary Martin skoraði úr vítaspyrnunni og það var hans 12 mark í deildinni í 14 leikjum. Mögnuð tölfræði. Hann er nú næst markahæstur ásamt Thomas Mikkelsen. Baráttan um Gullskóinn verður spennandi milli þeirra tveggja og Hilmars Árna.

Hvað þýða úrslitin?
Blikar gulltryggja sér Evrópusætið og jafnframt 2. sætið. Eyjamenn spiluðu sinn síðasta heimaleik í Pepsí Max deildinni en vonandi sjáum við þá aftur í deild þeirra bestu árið 2021.
Vondur dagur
Það var enginn leikmaður sem átti slæman dag. Veðrið bauð ekki uppá skemmtilegan fótbolta, mikill vindur á annað markið og völlurinn blautur og þungur. Þannig aðstæðurnar fá vondan dag.
Dómarinn - 8.0
Solid leikur hjá Þorvaldi.