Fotbolti.net
Valur Gunnarsson
Valur Gunnarsson
Pepsi Max-deild karla
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 3
KA
KA
0 - 138' Hallgrímur Mar Steingrímsson0 - 253' Elfar Árni Aðalsteinsson Guðmundur Andri Tryggvason 58'1 - 21 - 365' Hallgrímur Mar SteingrímssonKwame Quee 91'2 - 3
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: KA-menn taka stigin þrjú Norður eftir frábæran leik

Hvað réði úrslitum?

KA menn nýttu færin sín en Víkingur ekki. Það er ekki flóknara en það.

Bestu leikmenn

1. Aron Dagur Birnuson

Var frábær í markinu í dag og bjargaði gestunum oft á tíðum frábærlega.

2. Elfar Árni Aðalsteinsson

Var líflegur allan leikinn og skoraði og lagði upp.

Atvikið

Þriðja mark KA-manna. Eftir að Víkingar minnkuðu muninn í eitt mark hafði maður á tilfinningunni að þeir myndu jafna leikinn en hrikalega klaufalegt mark kom KA í 3-1 og kláraði í raun leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

KA fer í 5. sæti en Víkingar eru í því 10.. Úrstit í öðrum leikjum gera það þó að verkum að Víkingar eru með í deild þeirra bestu á næsta ári.

Vondur dagur

Þórður Ingason. Þriðja markið skrifast alfarið á hann og það fór langt með leikinn.

Dómarinn - 7

Solid sjöa á Ívar í dag. Ekkert stórt atvik sem skrifast á hann. Víkingar vildu rautt í eitt skiptið en ég held að gult hafi verið réttur dómur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.