SKÝRSLAN: Umdeild vítaspyrna tryggði ÍA stig í Kórnum
Hvað réði úrslitum?
HK átti fleiri sóknir í leiknum en ÍA pressaði vel undir lokin og fékk víti sem Tryggvi skoraði úr. ÍA fékk önnur færi undir lokin sem liðið hefði átt að nýta. Heilt á litið líklega sanngjörn úrslit en ansi súr fyrir HK.
Bestu leikmenn
1. Birnir Snær Ingason (HK)
Reyndi heilan helling og margt heppnaðist. Gladdi augað oft á tíðum og sýndi lit sem skar sig út í þessum baráttuleik.
2. Árni Snær Ólafsson (ÍA)
Árni er ótrúlega öflugur fótboltamaður og getur spyrnt þangað sem hann vill og tekið vel á móti boltanum. Það er helst spyrnugeta hans sem hreif mest sem og flottar vörslur. Það færir honum þessa nafnbót.
Valgeir, Arnþór, Steinar, Sindri og Emil komu allir einnig til greina. Erfitt að velja þann sem mér fannst næstbestur.
Valgeir, Arnþór, Steinar, Sindri og Emil komu allir einnig til greina. Erfitt að velja þann sem mér fannst næstbestur.
Atvikið
Vítaspyrnudómurinn undir lokin. Aukaspyrna frá Tryggva sem fer á fjærstöngina. Þar fellur Lars Marcus og Egill dæmir víti. Jói Kalli var alveg sannfærður en Brynjar Björn og Alexander Freyr voru það ekki. Ég sá þetta persónulega ekki vel og get ekki metið hvort þetta var rétt. Tryggvi jafnaði leikinn úr vítaspyrnunni.
Hvað þýða úrslitin?
Liðin voru jöfn að stigum fyrir umferðina og eru það enn, ótrúlegt en satt.
Vondur dagur
Ásgeir Marteinsson var flottur í dag en hann tapaði boltanum alveg skelfilega illa í lokin og braut af sér í kjölfarið. Upp úr þeirr aukaspyrnu kom svo vítaspyrnan. Þess vegna fær hann þessa nafnbót.
Einar Logi var ekkert frábær í fyrri hálfleik svo hann fær einnig tilnefningu.
Einar Logi var ekkert frábær í fyrri hálfleik svo hann fær einnig tilnefningu.
Dómarinn - Átta (8)
Þetta er með fyrirvara. Mér fannst Egill gera hárrétt í öllum stóru ákvörðunum en svo sé ég ekki hvað gerist þegar ÍA fær víti. EF þetta er ekki víti þá dregur það hann að sjálfsögðu niður en hann fær NÍU (9) ef þetta er 'spot on'.



