SKÝRSLAN: Aðeins stærðfræðin heldur titlinum frá Val
Hvað réði úrslitum?
Valsmenn voru bara miklu betri á öllum sviðum knattspyrnunar í dag. Ógn þeirra fram á við er engu lík í þessari deild og spilamennska liðsins hreint út sagt frábær heilt yfir. Þeir hafa verið vaxandi í allt sumar og verða verðskuldað Íslandsmeistarar í haust.
Bestu leikmenn
1. Birkir Már Sævarsson
Tveggja marka maður í dag og þess utan frábær varnarlega. Nýtur þess að spila í vel spilandi liði og átti frábæran dag.
2. Haukur Páll Sigurðsson
Jarðýta á miðju Vals sem hrinti hverri sókn FH af fætur annari frá. Lagði upp mark með góðum skalla og var heilt yfir gríðarlega flottur,.
Atvikið
Á 17. mínútu leiksins í stöðunni 0-0 gerði FH sterkt tilkall til vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd Eiðs Arons í teig Vals en Helgi Mikael sá ekki ástæðu til þess að dæma. Ómögulegt er að segja hvernig leikurinn hefði þróast hefði Helgi dæmt víti en aðeins mínútu síðar fékk FH mark í andlitið þegar Birkir Már skallaði boltann inn af stuttu færi.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða það að Valur eykur forskot sitt á toppnum í 11 stig. Tölfræðileg staðfesting á Íslandsmeistaratitli þeirra færist því nær og nær. FH heldur 2.sætinu og markmiðið þar væntanlega að tryggja Evrópusætið sem fyrst.
Vondur dagur
Bakverðir FH Hörður Ingi og Hjörtur Logi áttu í miklu basli með vængmenn og bakverði Vals í leiknum. Máttu sín lítils gegn kvikum og leiknum Valsmönnum í dag.
Dómarinn - 6
Heilt yfir dæmdi Helgi leikinn allt í lagi. Eftir standa þó stór atriði, Átti FH að fá víti á 17,mínútu, var rauða spjaldið á Guðmann réttmætt og fór boltinn fyrst í hönd Sigurðar Egils þegar Valur fékk vítaspyrnuna sem endanlega gerði út um leikinn.


