Fotbolti.net
Kristófer Jónsson
Kristófer Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Kópavogsvöllur
Smá vindur og skítkalt
Breiðablik
Breiðablik
2 - 1
Stjarnan
Stjarnan
0 - 128' Alex Þór Hauksson Viktor Karl Einarsson 34'1 - 1Thomas Mikkelsen (víti) 63'2 - 1
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 328 manns

SKÝRSLAN: Blikasigur gegn bitlausum Stjörnumönnum

Hvað réði úrslitum?

Blikar voru einfaldlega bara miklu betri í þessum leik frá fyrstu mínútu. Stjörnumenn lágu mjög aftarlega á vellinum og sköpuðu sér enginn færi. Alex Þór kemur þeim yfir með stórkostlegu marki uppúr engu en Blikar svara strax. Í seinni hálfleik var einstefna að marki Stjörnunnar og bara tímaspursmál hvenær Blikar myndu skora.

Bestu leikmenn

1. Oliver Sigurjónsson

Bar fyrirliðabandið í fyrri hálfleik og gerði það vel. Góður að stjórna spilinu á miðri miðjunni og stoppaði nokkrar sóknir hjá Stjörnunni.

2. Damir Muminovic

Ætla að gefa Damir þetta. Byrjaði leikinn í hægri bakverði og leysti þá stöðu með stakri prýði. Góður bæði sóknarlega og varnarlega þá. Lítið að gera hjá honum í seinni hálfleik en gerði það sem að hann þurfti að gera.

Atvikið

Sigurmark Breiðabliks kom úr vítaspyrnu sem að Brynjólfur Willumsson fiskaði. Við fyrstu sýn leit þetta út eins og klár vítaspyrna en einhverjir VAR sérfræðingar hafa verið ósammála mér.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik kemur sér í þriðja sæti deildarinnar, 14 stigum frá toppliði Vals. Gott fyrir þá fyrir komandi Evrópu baráttu. Stjörnumenn tapa sínum öðrum leik í röð og eru í sjötta sæti, tveimur stigum á eftir Blikum.

Vondur dagur

Halldór Orri Björnsson átti afleitann leik. Gerði allt mjög hægt og mikið af feilsendingum. Þá má einnig nefna Þorstein Má, Sölva Snæ og Guðjón Baldvinsson sem að sáust lítið sem ekkert í leiknum.

Dómarinn - 6

Erfitt að segja. Blikar vildu fá rautt spjald á Alex Þór í fyrri hálfleik og einhverjir setja spurningamerki við vítaspyrnudóminn. Gefum honum bara solid sexu þangað til að annað kemur á daginn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.