Fotbolti.net
Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Meistaravellir
Haustið svo sannarlega komið, við leggjum af stað í 4ra gráðu hita og sterkur vindur á hlið en þó í átt að KR-heimilisins, sólin skín. Völlurinn geggjaður hjá Bö-vélinni.
KR
KR
1 - 1
Grótta
Grótta
38' Sigurvin Reynisson 39' Guðmundur Steinarsson0 - 154' Karl Friðleifur GunnarssonPablo Oshan Punyed Dubon 70'1 - 1
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Tíu Gróttumenn tóku stig í slagnum um vestrið

Hvað réði úrslitum?

Þrjóskur varnarleikur gestanna og lítill ákafi heimamanna sem voru manni fleiri í um klukkustund.

Veðrið spilaði svosem líka inní

Bestu leikmenn

1. Arnar Þór Helgason

Frábær í miðju varnarinnar. Tók fyrirliðabandið þegar Sigurvin var rekinn útaf og stýrði varnarleiknum af mikilli festu. Greip svo inn sjálfur með frábærri björgun á línu í 1-1 stöðu.

2. Stefán Árni Geirsson

Langbestur KR-inga, öll hættan í kringum hann, stoðsendingin kom frá honum og hann hefði í raun átt að fá a.m.k. 2 slíkar í viðbót en félagar hans náðu ekki að klára færin.

Atvikið

Rauða spjaldið hans Sigurvins.

Eftir klafs við línuna hendir hann í svakalega tæklingu á Pablo. Þeir lágu báðir eftir og mikil reikistefna varð í 3 mínútur á meðan tríóið spjallaði um niðurstöðuna og sjúkraliðið hlúði að báðum aðilum.

Þá kom svarið um hvort spjaldið varð rautt eða gult. Rauða varð valið og frá blaðamannastúkunni séð stóðst sá dómur skoðun.

Hvað þýða úrslitin?

KR tapar stigum í baráttunni um Evrópusætið og Grótta hefði þurft að sigra til að eiga möguleika á að halda sætinu í deildinni.

Næsta umferð inniheldur lykilleiki fyrir bæði lið.

Vondur dagur

Öll sóknarlína KR utan Stefáns átti vondan dag.

Í raun bara kannski allur sóknarleikurinn sem var hugmyndasnauður í leiknum, endalausar tilraunir til að fara upp miðjan völlinn sem enduðu bara stanslaust á vörn gestanna. Jafnvel eftir að hafa skorað jöfnunarmark upp úr vængspili!

Dómarinn - 8,5

Tríóið tók stóra ákvörðun í fyrri hálfleik og svo aðra þegar Gróttan skorar markið sitt. Yfirvegaðir í sínum aðgerðum...fulllangur tími í rauða spjaldinu þó bauð upp á smá hasar. Stórar ákvarðanir held ég réttar og línan í dómgæslunni góð.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.