Fotbolti.net
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Pepsi Max-deild karla
Würth völlurinn
Fylkir
Fylkir
2 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
Ásgeir Eyþórsson 27'1 - 01 - 168' Kristall Máni IngasonOrri Sveinn Stefánsson 77'2 - 1
Dómari: Erlendur Eiríksson
Leik lokið!
Fylkismenn sigra þenna leik!
Víkingar hentu öllu fram til þess að freista þess að ná marki en það tókst ekki!
93. mín
Víkingar ætla gefa allt í þetta! Ingvar farinn fram í horn. Fylkismenn vinna boltann og ekkert að drífa sig fram en þegar þeir loksins koma fram þá er Ingvar mættur í skógarhlaup og Fylkismenn eiga opið mark fyrir framan sig en eru alltof lengi að þessu og loks þegar skotið kemur er maður mættur á línuna að bjarga.
91. mín
Fáum 3 mínútur í uppbótartíma.
89. mín
ÁSGEIR BJARGAR Á LÍNU!!
Víkingar í stórhættulegri sóknarlotu og Halldór Jón Sigurður Þórðarsson nær góðum skalla sem fer framhjá Aron Snæ í marki Fylkis en Ásgeir Eyþórs bjargar á línu!
Víkingur R.
88. mín
InnSigurður Steinar Björnsson
ÚtDavíð Örn Atlason
Fylkir
87. mín
Gult spjald

Sam Hewson

86. mín
Fylkismenn hefðu mögulega átt að fá víti þarna! Virðist alveg klárlega fara í hendina á Halldór Smára en Erlendur dæmir ekkert. Vafasamt í meira lagi.
85. mín
INGVAR JÓNSSON!!
Michael Kedman með frábæra fyrirgjöf fyrir á Djair sem á frábært skot út við stöng að því virðist en Ingvar Jónsson með stórkostlega markvörslu!
Fylkir
84. mín
InnSam Hewson
ÚtÓlafur Ingi Skúlason
83. mín
Arnór Borg með skemmtilegt hlaup og reynir að læða boltanum framhjá Ingvari úr þröngu færi á nærstöng en vinnur innkast.
81. mín
Ágúst Hlyns með enn eitt hlaupið í kvöld sem skapar ursla en liðsfélagar hans klappa boltanum alltof mikið og Fylkismenn ná að verjast.
Fylkir
77. mín
MAAAARK!

Orri Sveinn Stefánsson

MAARK!!

Fylkismenn komast aftur yfir!!
Veit ekki hvort hann fái markið skráð á sig en mér sýndist það vera Halldór Smári sem þrumaði knettinum í þaknetið en hann var á leiðinni inn eftir skalla frá Orra svo ég gef Orra þetta!
Markið kom eftir seinnibylgju úr horninu og vörslu frá Ingavari.
77. mín
Arnór Borg með flotta innkomu og vinnur horn eftir flotta takta.
Fylkir
74. mín
InnArnór Borg Guðjohnsen
ÚtArnór Gauti Ragnarsson
Víkingur R.
68. mín
MAAAARK!

Kristall Máni Ingason (stoðsending: Adam Ægir Pálsson)

MAARK!

Víkingar jafna!!
Adam Ægir með flottan bolta sem rúllar í gegnum allan pakkan út á fjærstöng þar sem Kristall Máni kemur og nær að að koma boltanum í netið!
66. mín
Víkingar að komast í færi en vantar gæðin á að klára.
Fylkir
64. mín
InnDaníel Steinar Kjartansson
ÚtDaði Ólafsson
61. mín
Fylkismenn með flotta tilraun, fyrirgjöf frá Djair og Arnór Gauti ekki langt frá því að ná að stýra boltanum í átt að marki.
59. mín
Fylkismenn fá þrjár hornspyrnur í röð áður en Víkingar ná að koma boltanum frá.
56. mín
Stúkan er farinn að taka við sér, mikill barningur um boltann.
53. mín
Það er aðeins farið að hitna í þessu.
Fylkir
53. mín
Gult spjald

Ragnar Bragi Sveinsson

52. mín
Arnór Gauti og Erlingur lenda saman og það hitnar aðeins í þessu en Erlendur róar menn niður og lætur spjöldin eiga sig í þetta skiptið.
50. mín
Víkingar með ágætis sóknarlotu en Fylkismenn vá að verjast vel.
Fylkir
49. mín
Gult spjald

Nikulás Val Gunnarsson

48. mín
Michael Kedman með frábæra stungu á Orra Hrafn en Ingvar Jónsson lokar frábærlega á hann!
46. mín
Seinni hálfleikur er farin af stað!
Víkingur R.
46. mín
InnAtli Barkarson
ÚtDofri Snorrason
Fylkir
46. mín
InnMichael Kedman
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
45. mín
Hálfleikur
+3
Fylkismenn leiða í hálfleik! Verið kaflaskiptur leikur og heilt yfir ágætis jafnræði á liðunum. Bæði lið óheppin að vera ekki búin að skora fleirri mörk í leiknum.
45. mín
Davíð Örn með frábæra fyrirgjöf fyrir markið sem Ágúst Eðvald nær að koma tánnum í en skotið framjá.
43. mín
Ágúst Eðvald!
Erlingur er allt í einu sloppinn innfyrir og ætlar að leggja boltann á Ágúst Eðvald sem bíður eftir boltanum í stað þess að ráðast beint á hann og Orri Sveinn nær frábærri tæklingu sem truflar Ágúst Eðvald og skotið yfir markið.
41. mín
ARNÓR GAUTI!!
Er stungið innfyrir og á bara Ingvar eftir en Ingvar nær að loka á hann og bjarga Víkingum.
40. mín
Arnór Gauti skallar boltann inn en er dæmdur rangstæður.
Víkingur R.
38. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtKári Árnason
Kári eitthvað meiðst en við hvað er ekki gott að segja - Vonandi er þetta ekki alvarlegt
38. mín
Fylkir í flottri sóknarlotu sem endar með hörku skoti frá Nikulás Val sem Ingvar ver vel í horn.
Víkingur R.
28. mín
Gult spjald

Dofri Snorrason

Fylkir
27. mín
MAAAARK!

Ásgeir Eyþórsson (stoðsending: Daði Ólafsson)

MAARK!!

Fylkismenn eru kominr yfir!
Aukaspyrna fyrir markið sem þar sem Ásgeir Eyþórs rís hæðst og skallar hann inn!
24. mín
Víkingar með ágætis sókn sen Ágúst Hlyns á flottan sprett inn á völlinn og kemur boltanum út og fær fyrirgjöf fyrir markið frá Davíð Erni sem hann skallar en beint á Aron Snær í marki Fylkis.
21. mín
Fylkismenn óheppnir að komast ekki yfir en eftir rólega byrjun eru þeir heldur betur búnir að banka á dyrnar.
20. mín
Þórður aftur á ferðinni en hann á fyrirgjöf held ég frekar en skot sem dettur á slánna.
18. mín
Þórður Gunnar!!
Frábært skot frá Þórði Gunnari sem smellur í tréverkið! Sá ekki hvort Ingvar hafi komið við boltann en hann var í honum en þetta var alvöru skot!
Víkingur R.
16. mín
InnAdam Ægir Pálsson
ÚtKwame Quee
Kwame líklega meiðst áðan og getur ekki haldið leik áfram.
13. mín
Víkingar við það að læða Kristal Mána innfyrir en Fylkismenn bjarga í horn.
11. mín
Kwame liggur eftir og fær aðhlýningu, skokkar svo út að hliðarlínu með sjúkraþjálfaranum. Fær svo að koma aftur inná.
10. mín
Víkingur kemst í flotta stöðu og Dofri reynir sendingu fyrir markið sem svífur framhjá pakkanum.
6. mín
Ágúst Hlyns með fyrsta skot leiksins en það fer framhjá markinu.
3. mín
Þórður Gunnar vinnur boltann vel og keyrir á vörn Víkinga en er stöðvaður.
1. mín
Það eru gestirnir sem byrja þennan leik.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár en þau má sjá til hliðar og hér.
Enginn Óttar Magnús hjá Víkingum en hann er farinn til Ítalíu og sömuleiðis er markahæsti maður Fylkis á tímabilinu, Valdimar Þór Ingimundarsson horfin til Noregs en þeir eru báðir farnir í heim atvinnumennskunnar.
Fyrir leik
Jón Þór Hauksson, þjálfari kvennalandsliðsins er spámaður umferðarinnar að þessu sinni:

Fylkir 2 - 2 Víkingur R.
Þetta verður hörkuleikur þar sem bæði lið vilja vinna eftir slæmt gengi undanfarið. Óli Þórðar verður heiðurgestur og býður mönnum í ókeypis sjómann í hálfleik.
Fyrir leik
Tölfræði Víkinga R:

Spilaðir leikir:14
Sigrar:3 (21%)
Jafntefli:6 (43%)
Töp:5 (36%)

Víkingar R hafa skorað 20 Mörk og fengið á sig 22 Mörk.
Markahæstu menn:
Óttar Magnús Karlsson - 9 Mörk
Ágúst Eðvald Hlynsson - 3 Mörk
Davíð Örn Atlason - 2 Mörk
*Aðrir minna.
Fyrir leik
Tölfræði Fylkis:

Spilaðir leikir:15
Sigrar:7 (47%)
Jafntefli:1 (7%)
Töp: 7 (46%)

Fylkir hefur skorað 22 Mörk og fengið á sig 24 mörk
Markahæstu menn:
Valdimar Þór Ingimundarsson - 8 Mörk
Arnór Gauti Ragnarsson - 3 Mörk
Ásgeir Eyþórsson - 2 Mörk
Orri Sveinn Stefánsson - 2 Mörk
Hákon Ingi Jónsson - 2 Mörk
Djair Parfitt-Williams - 2 Mörk
* Aðrir með færri mörk
Fyrir leik
Víkingar fengu HK í heimsókn sl mánudagskvöld á heimavöll hamingjunnar og enduðu leikar þar jafnir 1-1.
Víkingar hafa valdið ákveðnum vonbrigðum í sumar og vilja vafalaust bæta úr því það sem eftirlifir móts.
Fyrir leik
Heimamenn í Fylki koma inn í þennan leik særðir eftir tap gegn FH á þessum velli sl. mánudag en FH hafði betur 1-4. Það má því gera fastlega ráð fyrir að Fylkismenn ætli að bæta upp fyrir það strax í kvöld þegar Víkingar mæta í heimsókn.
Fyrir leik
Við eigum von á hörkuleik hér í kvöld en bæði lið hafa ekki verið dugleg í stigasöfnun í þessum mánuði og hafa verið að misstíga sig. Bæði lið vilja vafalaust bæta úr því hér í kvöld.
Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Fylkis og Víkinga R.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.