SKÝRSLAN: ÍR-ingar byrja tímabilið af krafti
Hvað réði úrslitum?
Heimamenn virtust einfaldlega vera í betra formi en gestirnir í dag. ÍR-ingar voru fyrri í allra bolta og Leiknismenn ógnuðu í raun ekki marki heimamanna í seinni hálfleiknum.
Bestu leikmenn
1. Axel Kári Vignisson
Fyrirliðinn steig ekki feilspor í leiknum. Stýrði ÍR-liðinu vel og skoraði glæsilegt mark í seinni hálfleik.
2. Halldór Arnarsson
Dóri Arnars gaf sig allan fyrir málstaðinn og var eins og klettur í varnarlínu ÍR-inga.
Atvikið
Seinna mark ÍR-inga, glæsilegt skot frá Axeli Kára fyrir utan teig.
Hvað þýða úrslitin?
ÍR-ingar byrja tímabilið sterkt og gefur leikurinn í dag góð fyrirheit fyrir framhaldið.
Leiknismenn ætla væntanlega að bæta fyrir daginn í dag í næstu umferð.
Leiknismenn ætla væntanlega að bæta fyrir daginn í dag í næstu umferð.
Vondur dagur
Sóknarleikur Leiknismanna var ekki upp á marga fiska í seinni hálfleiknum.
Eftir að hafa byrjað sterkt duttu Leiknismenn úr takti eftir að ÍR-ingar komust yfir og náðu í raun aldrei að jafna sig almennilega.
Eftir að hafa byrjað sterkt duttu Leiknismenn úr takti eftir að ÍR-ingar komust yfir og náðu í raun aldrei að jafna sig almennilega.
Dómarinn - 7
Fór lítið fyrir Gunnari í dag sem er það sem fólk vill sjá frá dómurum


