Fotbolti.net
Logi Freyr Gissurarson
Lengjudeild karla
JÁVERK-völlurinn
Glænýtt gervigras, sól en smá vindur.
Selfoss
Selfoss
0 - 3
Vestri
Vestri
0 - 13' Vladimir Tufegdzic (víti)0 - 219' Vladimir Tufegdzic0 - 321' Nicolaj Madsen
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Áhorfendur: 100

SKÝRSLAN: Góð byrjun Vestra skilaði öruggum sigri

Hvað réði úrslitum?

Vestri byrjaði leikinn af mun meiri krafti en Selfyssingar og voru komnir í örugga forystu snemma leiks sem skilaði sigri.

Bestu leikmenn

1. Vladimir Tufegdzic - Vestri

Skoraði tvö mörk og átti mjög fínan leik.

2. Sergine Fall - Vestri

Var gríðarlega öflugur á kantinum og kom vörn Selfoss í mikil vandræði.

Atvikið

Vítaspyrnan hjá Vestra sem Stefán var mjög nálægt að verja en boltinn lak inn... þetta var mjög tæpt.

Hvað þýða úrslitin?

Vestri byrjar vel og fer beint á toppinn eftir fyrstu umferð í Lengjudeidinni. Selfoss fer beint á botninn með mínus 3 í markatölu

Vondur dagur

Vondur dagur fyrir varnalínu Selfoss þar sem Vestri er með hraða sóknarmenn sem bjuggu til vandræði aftur og aftur.

Dómarinn - 6/10

Erfiður leikur að dæma, mikið um snertingar en hafði heilt yfir ágætis stjórn á leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.