SKÝRSLAN: Mossfellsbærinn trylltist eftir jöfnunarmark á lokamínútu
Hvað réði úrslitum?
Kórdrengir sköpuðu fullt af færum, en vandamálið var að klára þessi færi. Kórdrengju hefðu átt að vinna leikinn með en því miður fyrir þá, þá endaði leikurinn jafntefli eftir stórkostlegt skallamark hjá Orra.
Bestu leikmenn
1. Daníel Gylfason
Daníel átt frábæran leik. Hann var allstaðar á vellinum. Hann átti stoðsendingu í marki Kórdrengja og var einnig öflugur varnarlega.
2. Patrekur Orri Guðjónsson
Mér finnst að maður sem byrjaði á bekknum og skoraði svo jöfnunarmark fyrir Aftureldingu eigi skilið að komast á þennan lista.
Atvikið
Þegar Patrekur Orri skoraði jöfnunarmarkið þá trylltist bærinn. Þrátt fyrir að halda ekki með hvorugu liðanna, þá gat maður ekki annað en verið glaður að sjá fögnuðinn í stuðningsmönnum Aftureldingar.
Hvað þýða úrslitin?
Kórdrengir fara svekktir frá Mossfellsbæ með 1 stig á meðan Mosfellingar fara sáttir heim eftir jöfnunarmarkið.
Vondur dagur
Þrátt fyrir 1 mark, þá var Connor Mark ósýnilegur í þessum leik. Hann skoraði í opið mark eftir geggjaða stoðsendingu frá Daníel, en hefði átt að gera betur í öðrum færum.
Dómarinn - 7,5
Það var mikil harka í þessum leik. Mörg gul og 2 rauð spjöld í þessum leik. Dómarinn tæklaði þennan hörkuleik ágætlega.



