SKÝRSLAN: Skagamenn börðu fram jafntefli gegn Víkingum
Hvað réði úrslitum?
Það hlaut eitthvað að gefa eftir á endanum, Skagamenn komu inn í seinni hálfleikinn með látum og voru betra liðið það sem eftir lifði leiks.
Bestu leikmenn
1. Brynjar Snær Pálsson, ÍA
Brynjar var allt í öllu hjá ÍA í dag. Góðar sendingar og stýrði boltanum vel auk þess að koma sér í nokkur góð skotfæri og vera nálægt því að skora mark.
2. Þórður Ingason, Víkingur
Það var Doddi Inga sem kom í veg fyrir skagamenn skoruðu fyrr en í lokin úr vítaspyrnu. Hann varði oft á tíðum mjög vel, var mjög kvikur í markinu.
Atvikið
Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga sagði eftir leik gegn Keflavík í fyrstu umferð að hann hafi beðið Helga Guðjónsson afsökunar á að hann byrjaði ekki. Helgi fékk svo byrjunarliðssætið í dag og þakkaði traustið í upphafi leiks þegar hann var réttur maður á réttum stað og fékk spyrnu Árna Snæs Ólafssona markvarðar ÍA í sig og þaðan í markið.
Hvað þýða úrslitin?
Liðin skipta með sér stigunum og skagamenn fengu þarna sitt fyrsta stig eftir að hafa tapað gegn Val í opnunarleiknum. Víkingar eru komnir í 2. sætið með 4 stig eftir tvær umferðir.
Vondur dagur
Leikmenn reyndu sitt en það var augljóst að þeim gekk illa að spila í aðstæðum á Akranesi. Það var geggjað gluggaveður, glampandi sólskyn. En fyrir utan gluggann var skítkalt, mikill vindur og leikmenn kvörtuðu meira að segja yfir að sólin væri lágt á lofti og truflaði þá. Völlurinn er ekki alveg kominn í sumargírinn heldur og bauð ekki upp á neinn glansfótboilta.
Dómarinn - 7
Pétur Guðmundsson stóð sig mjög vel í dag og lítið út á hann að setja.



