Fotbolti.net
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Lengjudeild karla
Extra völlurinn
Rigning og 8 gráður
Fjölnir
Fjölnir
2 - 1
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
0 - 139' Þorleifur ÚlfarssonRagnar Leósson 94'1 - 1Hilmir Rafn Mikaelsson 95'2 - 1
Dómari: Guðgeir Einarsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Rosaleg dramatík á Extravellinum í Grafarvogi

Hvað réði úrslitum?

Fjölnismenn voru ekki góðir í kvöld þrátt fyrir nokkur dauðafæri og voru Ólafsvíkingar betri aðilinn í kvöld og komust yfir með góðu marki um miðjan fyrri. Víkingar frá Ólafsvík vörðust frábærlega og hefðu átt þennan sigur skilið en Fjölnismenn sýndu góðan karakter í lokin og skoruðu tvö mörk í uppbótartíma og uppskáru þrjú stig.

Bestu leikmenn

1. Hlynur Sævar Jónsson (Víkingur Ólafsvík)

Hann ásamt Bessa voru mjög góðir í miðverðinum hjá Víkingum í kvöld og skölluðu ég veit ekki hvað marga og var varnarleikur Ólafsvíkinga heilt yfir góður í kvöld.

2. Harley Willard (Víkingur Ólafsvík)

Var mjög sprækur út á hægri væng hjá Ólafsvíkingum í kvöld og skapaði oft mjög miklar hættur með hraða sínum. Átti einnig nokkrar góðar fyrirgjafir sem sköpuðu hættur.

Atvikið

Sigurmarkið á 96 mínútu þegar Hilmir Rafn Mikaelsson slapp einn í gegn eftir sendingu frá Orra Þórhallssyni og kláraði mjög vel framhjá Marvini Darra í marki Ólafsvíkur.

Hvað þýða úrslitin?

Nauðsynlegur sigur Fjölnismanna í toppbaráttunni og eru þeir í fjórða sæti deildarinnar með 10.stig. Víkingar frá Ólafsvík voru grátlega nálægt sínum fyrsta sigri á tímabilinu og þurfa að bíða lengur eftir honum og sitja á botni deildarinnar með 1.stig.

Vondur dagur

Valdimar Ingi Jónsson gerði mörg mistök í kvöld, fékk boltann og tapaði honum oft klaufalega þegar Fjölnismenn voru í ákjósanlegum stöðum á vellinum. Hilmir Rafn bjargaði andlitinu sínu en hann fékk þrjú dauðafæri sem framherji verður að skora úr og hefði hann ekki sofið vel í nótt ef leikurinn hefði tapast fyrir Fjölni.

Dómarinn - 4.5

Guðgeir Einarsson var ekki nógu góður í kvöld. Sleppti fyrirliða Víkinga eftir að hann fór í tveggja fótatæklingu á Jóhann Árna og voru mörg atriði út á velli sem hann réði ekkert við. Svo var uppbótartími leiksins heldur betur umdeildur en Guðgeir bætti við fimm og kom sigurmark leiksins á 96.mínútu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.