SKÝRSLAN: Grindvíkingar sýndu klærnar í síðari hálfleik
Hvað réði úrslitum?
Byrjunin á síðari hálfleik hjá gestunum. Komu út af miklum krafti og eftir að þeir skoruðu sitt annað mark var aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi enda.
Bestu leikmenn
1. Oddur Ingi Bjarnason
Mikil gæði í þessum dreng. Var allt í öllu í sóknarleik gestanna.
2. Franko Lalic
Gat lítið gert í mörkum Grindvíkinga og bjargaði Þrótturum frá stærra tapi.
Atvikið
Annað mark Grindvíkinga verður að vera hérna. Annars var markvarslan frá Franko í fyrri hálfleik ekki langt undan.
Hvað þýða úrslitin?
Liðin berjast á sitthvorum enda töflunnar. Grindvíkingar fara í 12 stig og halda í við toppliðin. Þróttarar eru ennþá með 4 stig í 10. sætinu.
Vondur dagur
Sóknarleikur Þróttar var ekki upp á marga fiska í dag og átti ég von á meiru frá Sam Ford. Hann fékk ekki mikla hjálp en átti ekki góðan leik í kvöld.
Dómarinn - 8
Flott frammistaða hjá tríóinu.


