Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Lengjudeild karla
Domusnovavöllurinn
Rigning, 9 gráður
Kórdrengir
Kórdrengir
2 - 1
Grótta
Grótta
Davíð Þór Ásbjörnsson 14'1 - 01 - 119' Pétur Theódór Árnason Davíð Þór Ásbjörnsson 93'2 - 1
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Drama á Domusnova - Kórdrengir farnir að fóta sig betur

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var gríðarlega jafn og báðir markverðir voru í góðu stuði. Bæði lið fengu færi til að komast 2-1 yfir áður en Kórdrengir fundu sigurmarkið í uppbótartímanum. Augljóst var að Davíð Smári, þjálfari Kórdrengja, var ekki að fara að sætta sig við eitt stig. Hann dreif sína menn áfram í leit að sigurmarkinu og gerði skiptingar til að reyna að knýja fram þrjú stig. Það tókst.

Bestu leikmenn

1. Davíð Þór Ásbjörnsson - Kórdrengir

Rosalegur drifkraftur, tvö mörk, dramatískt sigurmark. Bestur á vellinum.

2. Lukas Jensen - Kórdrengir

Annan leikinn í röð tekur Jensen gríðarlega mikilvægar markvörslur. Kórdrengir eru fullvissir um að þarna fari besti markvörður deildarinnar.

Atvikið

Sigurmarkið eftir darraðadans í teignum í uppbótartíma. Fáar klisjur eru þreyttari en "þeir vildu þetta meira".... en mögulega átti hún hreinlega við í kvöld.

Hvað þýða úrslitin?

Eftir smá hikst í byrjun eru Kórdrengir að fóta sig betur í Lengjudeildinni og þessi úrslit hreinlega gera það að verkum að þeir stimpla sig inn í baráttuna um að enda í topp tveimur. Gróttumenn virðast vera sjálfum sér verstir um þessar mundir og eru að tapa niður góðum stöðum. Eru bara miðlungslið í deildinni miðað við frammistöðuna sagði Ágúst Gylfason eftir leik.

Vondur dagur

Björn Axel Guðjónsson fékk rosalegt dauðafæri til að koma Gróttu yfir seint í leiknum en Jensen varði í markinu. Átti að gera mun betur og hann fer pirraður á koddann.

Dómarinn - 4

Erfiður leikur að dæma, mikilvægið var bersýnilegt. Því miður höndlaði Aðalbjörn leikinn ekki nægilega vel. Mark var dæmt af Gróttu í fyrri hálfleik sem mínir menn í "VAR herberginu" á Langholtsvegi segja að hafi verið þvæla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.