Fotbolti.net
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pepsi-Max deild kvenna
Würth völlurinn
Gervigras - 9°C, rigning og örlítil gola
Fylkir
Fylkir
2 - 1
Tindastóll
Tindastóll
Hulda Hrund Arnarsdóttir 26'1 - 0Shannon Simon 55'2 - 02 - 188' Hugrún Pálsdóttir
Dómari: Óli Njáll Ingólfsson
Áhorfendur: 147
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Fylkis, langskot og stutt horn

Hvað réði úrslitum?

Ein eldgömul klisja: Það voru meiri gæði i Fylkisliðinu. Fylkir var sterkara aðilinn á vellinum án þess að skapa mörg dauðafæri á meðan gestunum voru fulloft mislagðar fætur inn á vítateig Árbæinga til að eiga möguleika á því að skora fleiri mörk. Leikur Fylkis einkenndist af langskotum frá Fylki og misvel útfærðum stuttum hornspyrnum en upp úr einni slikri kom annað markið.

Bestu leikmenn

1. Sæunn Björnsdóttir (Fylkir)

Sæunn átti tvær stoðsendingar og á meðan hún var í varnarlínunni hélt liðið hreinu.

2. Shannon Simon (Fylkir)

Shannon skoraði seinna markið og átti nokkrar tilraunir fyrir utan teig beint á Amber. Það eru gæði í Shannon, það leynir sér ekki.

Atvikið

Fyrra mark Fylkis: Löng sending upp völlinn frá Sæunni sem fer frábærlega við hlaup Huldu. Hulda tekur nokkrar snertingar, stillir sér vel upp, kemur sér inn á teiginn og á gott skot á nærstöngina.

Hvað þýða úrslitin?

Fyrsti sigur Fylkis kemur liðinu upp fyrir Tindastól í töflunni. Fylkir er með fimm stig í 9. sæti á meðan Tindastóll er með fjögur stig í 10. sæti. Öll lið í deildinni hafa nú leikið sex leiki. Tvö lið eru svo með sex stig.

Vondur dagur

Skrítið að velja úr sigurliði kannski en mér fannst full áberandi hvað Stefanía Ragnarsdóttir komst ekki í takt við leikinn og átti misheppnaðar tilraunir af hægri vængnum hjá Fylki. Grimmt mögulega en hún getur betur!
Sóknarkonur Tindastóls fannst mér heilt yfir jafnar í þessum leik og erfitt að nefna eina hér.

Dómarinn - 8

Virkilega vel dæmdur leikur, erfiðleikastuðullinn ekki sá hæsti. Eitt atvik sem ég vil koma inn á. Brot dæmt á Fjollu á 83. mínútu þegar Hugrún lá eftir. Fjolla kom með öðruvísi kraft inn í það návígi miðað við aðra leikmenn á vellinum og fannst mér dómarinn dæma þegar hann sá Hugrúnu liggja. Fjolla vann samt boltann sýndist mér.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.