Fotbolti.net
Logi Freyr Gissurarson
Lengjudeild karla
JÁVERK-völlurinn
Fínt veður
Selfoss
Selfoss
0 - 4
Fram
Fram
0 - 111' Frederico Bello Saraiva0 - 230' Frederico Bello Saraiva0 - 350' Albert Hafsteinsson0 - 469' Guðmundur Magnússon (víti)
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 300

SKÝRSLAN: Þægilegur sigur Fram á Selfossi.

Hvað réði úrslitum?

Fram komu vel skipulagðir og grimmari í leikinn og mikill gæða munur á liðunum.

Bestu leikmenn

1. Fredrico Saravia.

Skoraði tvö mörk og var mikið í boltanum og vörn Selfoss réðu ekkert við hann og var lang bestur.

2. Albert Hafsteinsson.

Var mikið í boltanum og var ógnandi í frábæru liði Framara og skilaði af sér einu marki.

Atvikið

Annað mark Fram þar sem Gunnar kemur út og ætti að frá brot en dómarinn metur það ekki þannig og eftir það þá sá Selfoss ekki til sólar.

Hvað þýða úrslitin?

Fram styrkir stöðu sína á toppnum og er ennþá með fullt hús stiga en Selfyssingar eru komnir í erfiða stöðu með mínus átta í markatölu.

Vondur dagur

Allt Selfoss liðið stóð sig heilt yfir ekki vel. Spiluðu rosalega hægt og þeir mættu ekki stefndir í leikinn og það sást frá fyrstu mínútu að Fram væri að fara að vinna þennan leik.

Dómarinn - 7,5/10

Elías hélt góðri línu allan leikinn nokkrir skrítnir dómar hér og þar en annars stóð hann sig vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.