SKÝRSLAN: Keflavík veit hvernig á að spila í vind!
Hvað réði úrslitum?
Flott spilamennska frá Keflavík eftir þeirra fyrsta mark réði 100% úrslitum. HK-ingar voru betri í leiknum, þangað til Keflavík skoraði sitt fyrsta mark. Eftir það átti Keflavík leikinn alveg og HK-ingar litu ekki út fyrir að geta jafnað leikinn.
Bestu leikmenn
1. Joey Gibbs
Joey skoraði tvö glæsileg mörk í þessum leik. Eitt úr aukaspyrnu og annað langskot fyrir utan teig.
2. Ástbjörn Þórðarsson
Ástbjörn átti frábæran leik í vörninni.
Atvikið
Fyrra markið sem Joey Gibbs skoraði. Keflavík fékk byr undir báða vængi við það.
Hvað þýða úrslitin?
Keflavík fer upp um eitt sæti, eða í 11. sæti, því að ÍA tapaði á móti KA á sama tíma. HK er áfram í níunda sæti í bili.
Vondur dagur
Framherjar HK-inga áttu slæman dag. Aðalega Stefan Alexander Ljubicic. HK-ingar voru einungis sterkir í fyrri hálfleik og voru aldrei að fara skora í þeim seinni.
Dómarinn - 8.5
Flottur leikur hjá dómara leiksins.



