SKÝRSLAN: Valsmenn refsuðu lánlausum Blikum
Hvað réði úrslitum?
Sigurhefðin og reynslan af því að vera sigurvegarar held ég að hafi átt hlut að máli hér í kvöld. Valsmenn vita hvað þeir þurfa að gera til að vinna fótboltaleiki og sýndu það í kvöld. Engin glansframmistaða en það dugði.
Bestu leikmenn
1. Birkir Heimisson
Átti þátt í tveimur mörkum Vals, öðru eftir hornspyrnu hans og hinu eftir að Guðmundur Andri fylgdi eftir stangarskoti Birkis. Var þess utan að atast í miðju Blika og gera þeim lífið leitt almennt.
2. Johannes Vall
Solid til baka og ógnandi í upphlaupum. Happafengur fyrir Val að hafa fengið hann.
Atvikið
Fyrsta mark Vals sett svolítið tóninn. Gestirnir verið mun betri út á velli en Valsmenn refsuðu þeim fyrir það að nýta ekki sína sénsa.
Hvað þýða úrslitin?
Valur sest á toppinn í það minnsta tímabundið með 20 stig. Víkingar eiga þó leik inni á þá og geta komist uppfyrir þá með sigri.
Blikar sitja í 5 sæti með 13 stig.
Blikar sitja í 5 sæti með 13 stig.
Vondur dagur
Kristinn Steindórsson var ekki að finna stráin sin á Valsvellinum í kvöld frekar en aðrir framliggjandi menn Blika. Fékk fínt færi í fyrri hálfleik en brást bogalistinn illilega.
Dómarinn - 8,5
Ívar og hans teymi voru ,með sitt á hreinu í kvöld og gerðu sitt vel af fagmennsku.


