Fotbolti.net
Matthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Pepsi Max-deild karla
Kaplakrikavöllur
Frábærar. Smá vindur en grasið grænt. Mætti vera hlýrra samt
FH
FH
1 - 1
Stjarnan
Stjarnan
Jónatan Ingi Jónsson 18'1 - 01 - 138' Einar Karl Ingvarsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Niðurstaðan sem hvorugt lið vildi

Hvað réði úrslitum?

Einfalt. Það vantaði brodd í sóknarleik beggja liða. Færin sem sköpuð voru, voru hálffæri. FH var í heildina séð betra liðið í kvöld en það dugði ekki til.

Bestu leikmenn

1. Jónatan Ingi Jónsson

Langlíflegastur FH í leiknum og virtist vera sá sem skapaði mestu hættuna.

2. Haraldur Björnsson

Fyrir tvær geggjaðar vörslur sem sáu til þess að Stjarnan tapaði ekki í kvöld.

Atvikið

69 mínúta. Einar Karl með geggjað skot sem hefði með réttu átt að syngja í sammaranum. En Gunnar Nielsen varði með stórkostlegri vörslu.

Hvað þýða úrslitin?

Fjórir leikir í röð án sigurs og það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir FH. Þeir sitja í 6 sæti með 11 stig. Sem ekki er það sem lagt er upp með í Kaplakrika. Stjarnan nær ekki að fylgja eftir góðum sigri á Val og eru með 7 stig í þriðja neðsta sæti deildarinnar með slakari markatölu en HK.

Vondur dagur

Veit ekki alveg hvern eða hverja eða hvað ég á að setja í þennan lið. Kannski bara sóknareffort beggja liða? Í það minnsta var lítið um færi og einhvernveginn bara frekar ómarkvisst allt saman, hjá báðum liðum.

Dómarinn - 8,5

Helgi Mikael hafði virkilega góða stjórn á leiknum. Fannst samt skrítið að spjalda ekki Matta Vill.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.