Fotbolti.net
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Pepsi Max-deild karla
Norðurálsvöllurinn
ÍA
ÍA
0 - 2
KA
KA
0 - 111' Dusan Brkovic0 - 270' Ásgeir Sigurgeirsson Óttar Bjarni Guðmundsson 87'87' Hrannar Björn Steingrímsson
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Baráttusigur KA manna og það er stutt í toppinn!

Hvað réði úrslitum?

KA menn voru ákveðnari og á undan í flesta bolta sem lýsir sér best í því að bæði mörkin koma eftir skot sem fer af skagamanni. Skagamenn voru lítið að ógna KA vörninni og þá verður lítið skorað

Bestu leikmenn

1. Ásgeir Sigurgeirsson

Hann var aðalmaður KA manna í sókninni í dag. Var allt í öllu og kórónaði frammistöðu sína með flottu marki

2. Dusan Brkovic

Skoraði vissulega fyrsta markið en kemst aðallega í þennan dálk vegna varnarvinnu sinnar. Var alltaf mættur til þess að stoppa sókn skagamanna og var snyrtilegur í sendingum.

Atvikið

Rauða spjaldið sem Óttar Bjarni fær. Ætlar að pota boltanum frá Hallgrími Mar en Hallgrímur er fljótari í boltann og fer því með takkana í klofið á honum. Réttilega rautt spjald og svo sauð allt uppúr í kjölfarið.

Hvað þýða úrslitin?

KA situr í 3. sæti með 16 stig tveimur stigum á eftir Víkingum en með leik til góða og gætu því komist upp í topp sætið.
ÍA situr á botni deildarinnar með 5 stig eftir 8 leiki en er þó bara einu stigi á eftir HK, Keflavík og störnunni sem öll eru með 6 stig

Vondur dagur

Óttar Bjarni. Hafði svo sem ekki átt neitt sérlega slakan leik þangað til kom að rauða spjaldinu en þetta er fjórða rauða spjald skagamanna á tímabilinu og það verður að fara kíkja á það.

Dómarinn - 8

Þetta var erfiður leikur að dæma mikið af brotum og spjöldum en Vilhjálmur stóð sig með prýði mikilvægu dómarnir voru réttir og ekki nema einhverjir smádómar sem voru kanski pínu vafasamir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.