Fotbolti.net
Unnar Jóhannsson
Lengjudeild karla
Framvöllur
Gervigrasið rennislétt, smá vinur á annað markið
Fram
Fram
5 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
Kyle Douglas McLagan 15'1 - 01 - 128' Róbert HaukssonÞórir Guðjónsson 30'2 - 1Guðmundur Magnússon 40'3 - 1Guðmundur Magnússon 45'4 - 1Þórir Guðjónsson 51'5 - 165' Samuel George Ford (misnotað víti)
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: Föstu leikatriðin fóru illa með Þrótt

Hvað réði úrslitum?

Fyrstu fjögur mörk Fram komu eftir föst leikatriði sem voru vel útfærð. Einnig eru mikil gæði í Frömurum fyrir framan mark andstæðinganna.

Bestu leikmenn

1. Þórir Guðjónsson

Margir sem komu til greina en Þóror skoraði tvö mörk og var ógnandi í fremstu víglínu Framara í dag.

2. Ólafur Íshólm

Kannski skrýtið að velja markmanninn númer tvö en hann var frábær í dag, öruggur í sínum aðgerðum og varslan í vítinu var til fyrirmyndar.

Atvikið

Hlynur Atli Magnússon kom inna á eftir kviðslit, hans fyrsti leikur í sumar, hann á eftir að nýtast Framliðinu vel.

Hvað þýða úrslitin?

Framarar virðast óstöðvandi, búnir að vinna alla átta leiki sína í deildinni og sitja sem fastast á toppnum. Þróttarar eru ennþá í 10.sætinu með 4 stig.

Vondur dagur

Franko Lalic átti ekki góðan dag, virtist allt leka inn í dag. Hann var óöruggur í sínum aðgerðum. Eins og hann var góður í síðasta leik var þessi leikur slakur. Það er þó ekki hægt að kenna honum um tapið.

Dómarinn - 8

Arnar og hans menn voru með allt í toppmálum í kvöld, fór lítið fyrir þeim sem er alltaf jákvætt fyrir dómara
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.