Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Fram
Fram
Lengjudeild karla
Framvöllur
12° og þungskýjað klassískt höfuðborgar veður
1 - 1
ÍBV
ÍBV
Indriði Áki Þorláksson 71'1 - 01 - 172' Jose Enrique Seoane Vergara
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Bragðdauft jafntefli í Safamýrinni

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið virtust vera æfa sig að spila í Pepsi Max deildinni. Þ.e.a.s. að sækja lítið en í 2 mínútur gleymdu þau sér og þá komu bæði mörk leiksins. Annars lítið að frétta frá sóknarmönnum beggja liða.

Bestu leikmenn

1. Halldór Páll Geirsson (ÍBV)

Varði alveg stórkostlega frá einum skalla sem kom í lok leiks eftir hornspyrnu og varði náttúrulega vítið líka.

2. Indriði Áki Þorláksson (Fram)

Var duglegur á miðjunni komst oft á milli sendinga þó það hafi ekki alltaf gengið upp sóknarlega hjá honum þá átti hann frábæran skalla sem varð að marki Framara.

Atvikið

Vítaklúður Alberts var eitt það lélegasta víti sem ég hef séð í langan tíma. Hann reynir að ,,panenka" en Halldór sá auðveldlega fyrir honum og greip boltann. Þarna hefði hann getað tekið öll 3 stigin.

Hvað þýða úrslitin?

Fram heldur toppsætinu með 32 stig eftir 12 leiki 9 stigum á undan ÍBV. ÍBV heldur líka sínu 2.sæti með 23 stig eftir 11 leiki og er núna 1 stig í Kórdrengi og 4 í Grindavík en Grindavík á leik til góða og næsti leikur eyjamanna er einmitt gegn Grindavík.

Vondur dagur

Sóknarmenn í báðum liðum nema kanski að frátektum Sito sem var líflegur en GPL, Þórir Guðjóns og Fred hafa allir átt betri daga auk annara. En allra mesti farþeginn var Þórir Guðjóns hann gerði ekkert sem ég man eftir úr leiknum þangað til honum var skipt útaf á 85. mínútu.

Dómarinn - 7

Helgi Mikael stóð sig nokkuð vel í leiknum þó það hafi verið nokkur vafa atriði. Vítið sem Framarar fengu var svolítið ,,soft" og gula spjaldið sem Aron Þórður fær kanski ekki rétt en annars vel dæmdur leikur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.