SKÝRSLAN: Breiðablik betra fótboltalið en Racing Union
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik var betra á öllum sviðum leiksins og fer verðskuldað áfram. Racing átti stangarskot en lítið annað um fína drætti frá gestunum. Ekkert tekið af Blikum samt, þeir voru þrusugóðir í þessum leik.
Bestu leikmenn
1. Davíð Ingvarsson
Virkilega góður í leiknum og á þennan gullbolta á Jason Daða sem skorar fyrra markið. Tafer (hægri kantur) sást ekki í leiknum.
2. Damir Muminovic
Mjög góður í miðverðinum, afskaplega öruggur í sínum aðgerðum og einn allra besti miðvörður landsins. Árni kom virkilega vel inn á og þá var Viktor Karl einnig góður.
Atvikið
Fyrsta markið, Jason Daði skorar eftir undirbúning frá Davíð og þá var aldrei spurning hvernig þetta myndi enda.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik fer áfram í 2. umferð í Sambandsdeildinni og mætir þar Austria Vín frá Austurríki.
Næst er þó deildarleikur gegn KR á sunnudag.
Vondur dagur
Thomas Mikkelsen kannski, gat lítið.
Dómarinn - 8
Vel dæmdur leikur



