Fotbolti.net
@hafthorbg47Hafþór Bjarki Guðmundsson
Grótta
Grótta
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Þvílíka leiðindaveðrið, óþægilegur kuldi og mikill vindur
2 - 1
Fjölnir
Fjölnir
Guðmundur Karl Guðmundsson (sjm) 65'1 - 0Kristófer Melsted 81'2 - 02 - 190' Helgi Snær Agnarsson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Grótta vann sterkan sigur á Fjölni

Hvað réði úrslitum?

Gróttumenn komu sterkir inn í síðari hálfleikinn og sköpuðu fleiri færi en Fjölnir sem gerði það að verkum að þeir skoruðu meira. Ekki flókin stærðfræði.

Bestu leikmenn

1. Sigurvin Reynisson

Venni gerði frábærlega á báðum endum vallarins, vann boltann fullt og missti boltann held ég aldrei. Mögulegt 100% sendingarhlutfall hjá honum.

2. Michael Bakare

Bakare var mjög öflugur í kvöld, óheppinn að þeir hafi ekki skorað meira en flest færi Fjölnis fóru í gegnum hann.

Atvikið

Tvö atvik sem koma til greina hérna. Annars vegar er það sjálfsmarkið sem kveiktu mjög í báðum liðum og gerði leikinn meira spennandi. Hins vegar gæti það líka verið gula spjaldið á Sigurpál sem er með ólíkindum að hafi ekki verið rautt. Algjörlega glórulaust brot og var hann tekinn útaf strax eftir.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta fer upp í 5. sæti, upp fyrir Fjölni í 6. sætinu á markatölu.

Vondur dagur

Augljósa svarið hérna væri hann Guðmundur Karl fyrir sjálfsmarkið en hann spilaði mjög vel yfir leikinn. Óhappamark og get ég ekki gefið honum þetta. Ragnar Leósson var ekki mjög áberandi áður en hann var tekinn útaf og síðan átti Sigurpáll að fá rautt og fór líka útaf stuttu seinna.

Dómarinn - 4.5

Dæmdi yfir allt nokkuð vel, nokkrar umdeildar ákvarðanir og að hann hafi ekki gefið rautt á Sigurpál dregur hann mikið niður.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.