SKÝRSLAN: Kórdrengir nýttu sér mistök og færast nær ÍBV
Hvað réði úrslitum?
Mistök Stefáns sem hitti boltann ekki vel og kemur boltanum ekki frá og skilur markið eftir tómt og tapar dýrmætum stigum.
Bestu leikmenn
1. Þorsteinn Daníel Þorsteinsson (Selfoss)
Var góður og hljóp mikið og átti góðar sendingar inná teiginn.
2. Davíð Þór Ásbjörnsson (Kórdrengir)
Stjórnaði miðjunni vel hjá Kórdrengjum og skoraði sigur markið.
Atvikið
Markið sem kom Kórdrengjum yfir eftir mistök hjá Stefáni sem hefur ekki spilað vel á þessu tímabili.
Hvað þýða úrslitin?
Kórdrengir halda sér í 3. sæti og færa sig nær ÍBV sem er með 23. stig. Selfoss er ennþá í botnbaráttu með 9. stig.
Vondur dagur
Vondur dagur fyir Selfoss fyrir framan markið sem hefðu átt að skora mark þar sem þeir fengu 58 sóknir og þar af þeim 47 hættulegar og ættu að ná að setja 1 eða 2 mörk.
Dómarinn - 9/10
Var góður og hélt leiknum undir stjórn og hélt góðri línu allan leikinn og á hrós skilið.


