SKÝRSLAN: Markaveisla í Mosfellsbæ!
Hvað réði úrslitum?
Fótboltinn sem Afturelding spilar réði úrslitum í dag. Einfalt, hratt og hnitmiðað spil þeirra var að valda Víking Ó. allsskonar vandræðum. Hefðu auðveldlega geta skorað fleiri. Gef Ólafsvíkingum það að fyrri hálfleikur var allt í lagi en þeir virtust sprungir í þeim seinni. Aldrei spurning í Mosfellsbænum í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Aron Elí Sævarsson
Fyrirliðinn var hrikalega öflugur í dag. Mark og þrjár stoðsendingar er ágætis dagsverk fyrir bakvörðinn sókndjarfa. Hann er líka bara svo hrikalega mikilvægur í uppspili Aftureldingar og tekur góðar ákvarðanir trekk í trekk.
2. Arnór Gauti Ragnarsson
Þessi sterki og vinnusami framherji sýnir að hann getur líka skorað mörk. Var oft á kantinum í Pepsi Max deildinni en sýnir hér gæði sín frammi þegar hann fær traustið. Flott frammistaða!
Atvikið
Arnór Gauti skorar mark rétt fyrir hálfleik og kemur heimamönnum þá yfir. Mikivægt að fara inn í hálfleik með forystu því gestirnir opnuðu sig í seinni og þá hófst veislan sóknarlega fyrir Aftureldingu.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding nær í góðan sigur og nálgast liðin fyrir ofan sig. Víkingar þurfa einfaldlega á kraftaverki að halda ef fall á ekki að vera niðurstaðan.
Vondur dagur
Varnarleikur Víkings var ekki góður en þeir þurfa líka að kanna formið á nokkrum mönnum. Ansi margir sem virtust búnir á því undir lok leiks. Líkamlega og andlega.
Dómarinn - 8
Erlendur Eiríksson flottur í kvöld. Góð stjórn á leiknum.



