Fotbolti.net
Ólafur Ingi Guðmundsson
Pepsí-deildin
Akranesvöllur
Völlurinn góður en rigning og gola
ÍA
ÍA
2 - 1
Fylkir
Fylkir
Garðar Bergmann Gunnlaugsson 25'1 - 01 - 156' Magnús Þórir Matthíasson57' Tómas Joð Þorsteinsson Garðar Bergmann Gunnlaugsson 80'2 - 1
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Áhorfendur: 833
Myndir: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur og velkomnir í beina textalýsingu frá leik ÍA og Fylkis í fjórtándu umferð Íslandsmótsins.
Fyrir leik
Þetta er mikilvægur leikur fyrir bæði lið enda mætast hér liðin í níunda og fimmta sæti deildarinnar. Liðin hafa mæst í 37 skipti í opinberum leikjum á vegum KSÍ og hefur ÍA unnið 19 leiki, Fylkir 12 og 6 sinnum hafa leikir endað með jafntefli. Markatalan er einnig ÍA í hag eða 67 mörk gegn 52 mörkum Fylkis.
Fyrir leik
Ég var svo beðinn um að koma sérstakri kveðju til Eyja þar sem Björn \'\'Mr. Boombastic\'\' Jónsson er að spila með KR. Hann er á fullu að vinna í plötu sinni \'\'In Seventh Heaven\'\' með HJK Helsinki :)
Fyrir leik
Liðin hafa byrjað Íslandsmótið nokkuð vel en deildin er afar jöfn og sem dæmi eru aðeins fjögur stig á milli þriðja sætis og þess níunda. ÍA er í níunda sæti deildarinnar með 18 stig eftir fimm sigurleiki, fimm tapleiki og þrjú jafntefli.
Fylkir er aftur á móti með 20 stig í fimmta sæti deildarinnar eftir fimm sigurleiki, þrjá tapleiki og fimm jafntefli.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin í hús en þau má sjá hér til hliðar.
Fyrir leik
Dómari leiksins er Gunnar Jarl Jónsson og honum til aðstoðar eru Gylfi Már Sigurðsson og Óli Njáll Ingólfsson. Eftirlitsmaður KSÍ er Sigurður Hannesson.
Fyrir leik
Liðin eru að ganga inn á völlinn. Aðstæður eru ekkert sérstakar, töluverð rigning og nokkuð hvass vindur.
1. mín
Leikurinn er hafinn og byrja Skagamenn með boltann.
8. mín
Fylkir á hornspyrnu. Boltinn fer yfir alla í vítateignum á Andra Þór Jónsson sem á hörkuskot en varnarmaður ÍA nær að bjarga á marklínu.
11. mín
Finnur Ólafsson gefur góða sendingu innfyrir vörn ÍA á Björgólf Takefusa. Hann leikur á varnarmann og á gott skot sem Árni Snær Ólafsson nær að verja í marki ÍA.
19. mín
Dean Martin með gott skot utarlega í vítateig Fylkis eftir sendingu frá Garðar Gunnlaugssyni. Bjarni Þórður Halldórsson nær að verja skotið með góðri markvörslu.
ÍA
22. mín
Gult spjald

Andri Adolphsson

ÍA
25. mín
MAAAARK!

Garðar Bergmann Gunnlaugsson

Ólafur Valur Valdimarson á sendingu inn í vítateig Fylkis utan af hægri kanti. Þar er Garðar Gunnlaugsson vel staðsettur og á skalla sem sem fer í jörðina og í markhornið.
29. mín
Andri Andolpsson með skot eftir hornspyrnu sem Ásgeir Börkur Ásgeirsson bjargar á marklínu Fylkis. Ármann Smári Björnsson nær svo frákastinu en skot hans fer framhjá stönginni.
37. mín
Ólafur Valur Valdimarsson á hörkuskot að marki Fylkis en boltinn fer rétt yfir þverslánna.
45. mín
Búið er að flauta til hálfleiks og staðan er 1-0 fyrir ÍA. Fyrri hálfleikur hefur verið nokkuð fjörugur þrátt fyrir erfiðar aðstæður og bæði lið skapað sér ágæt marktækifæri.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn og byrja Fylkismenn með boltann.
Fylkir
54. mín
Gult spjald

Tómas Joð Þorsteinsson

Fylkir
56. mín
MAAAARK!

Magnús Þórir Matthíasson

Tómas Þorsteinsson á frábæra fyrirgjöf inn í vítateig ÍA utan af vinstri kanti og þar er Magnús Þórir Matthíasson einn og óvaldaður og skorar af öryggi í fjærhornið.
Fylkir
57. mín
Rautt spjald

Tómas Joð Þorsteinsson

Tómas Þorsteinsson brýtur klaufalega á Dean Martin og fær sitt annað gula spjald.
62. mín
Dean Martin á góða sendingu inn í vítateig Fylkis og þar nær Andri Adolphsson góðu skoti sem fer rétt yfir markið.
Fylkir
64. mín
InnÁsgeir Eyþórsson
ÚtFinnur Ólafsson
ÍA
65. mín
InnFjalar Örn Sigurðsson
ÚtWentzel Steinarr Ragnarsson Kamban
Fylkir
71. mín
InnJóhann Þórhallsson
ÚtBjörgólfur Takefusa
ÍA
73. mín
InnJón Vilhelm Ákason
ÚtÓlafur Valur Valdimarsson
ÍA
80. mín
MAAAARK!

Garðar Bergmann Gunnlaugsson

Varamaðurinn Fjalar Örn Sigðurðsson á frábæra stungusendingu innfyrir vörn Fylkis á Garðar Gunnlaugsson sem kemur boltanum framhjá Bjarna Þórði í markinu.
ÍA
82. mín
InnHallur Flosason
ÚtGarðar Bergmann Gunnlaugsson
Fylkir
87. mín
InnAndri Már Hermannsson
ÚtElís Rafn Björnsson
Fylkir
90. mín
Gult spjald

Ásgeir Börkur Ásgeirsson

Fylkir
93. mín
Gult spjald

Davíð Þór Ásbjörnsson

94. mín
Dómari leiksins flautar leikinn af. Skagamenn vinna hér gríðarlega mikilvægan sigur á baráttuglöðum Fylkismönnum 2-1.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.