SKÝRSLAN: KA menn höfðu betur í rokinu á Domusnovavellinum
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn byrjaði rólega en Ásgeir Sigurgeirsson kom KA mönnum yfir snemma leik og eftir það tóku Leiknismenn yfir leikinn og áttu nokkur mjög góð færi sem Steinþór (Stubbur) varði vel í marki KA. Síðari hálfleikurinn var rólegri en Leiknismenn þó sterkari.
Bestu leikmenn
1. Steinþór Már Auðunsson (KA)
Maður leiksins í dag. Átti 3 frábærar vörslur í dag og greip vel inn í nokkrar fyrirgjafir Leiknismanna og var Stubbur frábær í ramma KA manna í dag.
2. Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Hetja KA manna í kvöld. Skoraði frábært mark í byrjun leiksins og var kannski frískasti leikmaður KA sóknarlega í dag.
Atvikið
Sólon Breki féll í teig KA manna á 77.mínútu eftir fyrirgjöf inn á teiginn en Erlendur Eiríksson dæmdi ekkert og má segja að KA menn hafi verið heppnir þar.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknismenn eru komnir niður í sjöunda sæti deildarinnar eftir þetta tap í dag en liðið er með 17.stig. KA menn lyfta sér upp í fjórða sætið og eru að blanda sér aftur í toppbaráttunal. Liðið er núna fjórum stigum á eftir toppliði Vals.
Vondur dagur
Sævar Atli Magnússon (Leiknir) - Sævar Atli var ekki á deginum sínum í dag. Fékk tvö góð færi sem hann náði ekki að klára sem hefur verið óvenjulegt að sjá. Fyrir utan færin var Sævar Atli ekki eins mikið í boltanum og sést hefur í undanförnum leikjum.
Dómarinn - 7
Erlendur Eiríksson var fínn í dag fyrir utan mögulega vítaspyrnu sem Leiknismenn áttu að fá í síðari hálfleik þegar Sólon féll inn á teig KA.



