Fotbolti.net
Benjamín Þórðarson
Benjamín Þórðarson
Pepsi Max-deild karla
Norðurálsvöllurinn
ÍA
ÍA
0 - 3
FH
FH
0 - 133' Steven Lennon (víti)0 - 249' Steven Lennon (víti)0 - 356' Steven Lennon
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: Þrennon sökkti Skagamönnum

Hvað réði úrslitum?

FH-ingar voru bara heilt yfir betri í þessum leik og stjórnuðu honum í rauninni eftir að hafa komst yfir.

Bestu leikmenn

1. Steven Lennon(FH)

Það er ekki erfitt að velja mann sem skorar þrennu sem mann leiksins.

2. Baldur Logi Guðlaugsson(FH)

Baldur Logi var flottur hjá FH í dag. Var mikið í boltanum og lagði upp síðasta markið.

Atvikið

Klárlega seinna vítið sem FH-ingar fengu. Þetta var skelfileg ákvörðun hjá Einari og félögum og hefði átt að vera gult fyrir leikaraskap.

Hvað þýða úrslitin?

Skagamenn sitja á botni deildarinnar og eru í vonum málum verður að segjast. FH-ingar hins vegar spyrna sér fast frá þeirri baráttu með þessum sigri.

Vondur dagur

Þetta verður að fara á Guðmund Tyrfingsson. Unglingalandsliðsmaðurinn fékk sjensinn í þessum leik og hann bara hreinlega sást ekki þangað til að hann var tekinn útaf.

Dómarinn - 5

Í raunninni var þessi leikur virkilega vel dæmdur en það er ekki bara ekki boðlegt að gera svona mistök eins og Einar gerði þegar hann gaf FH-ingum víti.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.