SKÝRSLAN: Tveir ólíkir hálfleikir 0 - 3 niðurstaðan
Hvað réði úrslitum?
Fyrsta mark Vals sem Patrick skorar virtist slá HK út af laginu og Valsmenn komu öflugir inn í seinni hálfleikinn og gerðu út af við leikinn þegar Birkir Már skoraði annað mark Vals á 48 mínútu.
HK áttu fyrri hálfleikinn nær eingöngu og náðu að skapa sér hættulegar stöður og færi sem þeir því miður fyrir þá, náðu ekki að nýta sér.
Bestu leikmenn
1. Birkir Heimisson
Tvær stoðsendingar og stjórnaði spilinu upp völlinn sér í lagi í seinni hálfleik.
2. Hannes Þór Halldórsson
Varði vel í fyrri hálfleik og hélt Valsmönnum inn í leiknum.
Atvikið
Birnir Snær átti skot í stöng Vals úr skotstöðu sem Birnir Snær vill vera í. Hefði boltinn ratað í netið er ég viss um að niðurstaðan hefði í það minnsta ekki verið jafn afgerandi sigur Vals og raunin varð.
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn ná að halda forystu á toppi deildarinnar og unnu sinn fyrsta digur eftir að hafa tapað fjórum leikjum í röð. HK sitja enn í fallsæti deildarinnar og þurfa nauðsynilega að fara að hala inn stigum ef ekki á illa að fara.
Vondur dagur
Stefán Alexander Ljubicic sást lítið í leiknum í dag.
Dómarinn - 10
Vel dæmdur leikur hjá Helga Mikael.



