Leik lokið!
Víkingssigur staðreynd!
97. mín
Gult spjald
Emil Atlason
Brýtur á Kára Árnasyni í skallaeinvígi.96. mín
Stjörnumenn vel pirraðir að leikurinn var ekki stöðvaður. Emil lá eftir vegna höfuðmeiðsla en Víkingar fengu að klára sóknina.
96. mín
Óskiljanleg ákvörðun hjá Kwame í skyndisókn. Jeminn eini. Tók innanfótar skot þegar Helgi Guðjóns var í frábærri stöðu.
94. mín
Víkingar fá hornspyrnu og í kjölfarið á henni á Adam Ægir skot sem fer í varnarmann inn á teig Stjörnunnar.
93. mín
Óli Valur með flotta fyrirgjöf meðfram jörðinni sem Emil hendir sér á og stýrir í netið af nærstönginni!
MAAAARK!
Emil Atlason (stoðsending: Óli Valur Ómarsson)
Eins og þruma úr heiðskíru lofti.Óli Valur með flotta fyrirgjöf meðfram jörðinni sem Emil hendir sér á og stýrir í netið af nærstönginni!
92. mín
Gult spjald
Karl Friðleifur Gunnarsson
Heimskulegt gult spjald, vildi fá innkast og sló í boltann.91. mín
Sjö mínútum bætt við!
90. mín
Stefnir allt í tveggja marka sigur Víkings.
87. mín
Hilmar Árni með skot sem fer af Þorsteini og afturfyrir. Víkingar eiga markspyrnu.
87. mín
Gult spjald
Sölvi Ottesen
84. mín
Nikolaj leggst niður þegar Víkingur er í sókn. Það er eitthvað að hrjá hann.
83. mín
Óli Valur vinnur hornspyrnu fyrir Stjörnuna.
82. mín
Hilmar Árni með aukaspyrnu aftarlega á vallarhelmingi Víkings. Þessi sending frá Hilmari fer yfir allan pakkann og afturfyrir.
81. mín
Kristall með skotið en það fer beint á Arnar Darra.
80. mín
Víkingar fá hornspyrnu eftir aukaspyrnuna frá Kristali.
Kristall vinnur boltann hinu megin við teiginn eftir hornspyrnuna og þar er brotið á honum. Þessi spyrna er aðeins nær en sú síðasta.
Kristall vinnur boltann hinu megin við teiginn eftir hornspyrnuna og þar er brotið á honum. Þessi spyrna er aðeins nær en sú síðasta.
78. mín
Gult spjald
Daníel Laxdal
Víkingur á aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Stjörnunnar. Daníel vill meina að hann hafi tekið boltann af Helga.78. mín
Elís með fyrirgjöf sem fer í Kwame og þaðan í hendurnar á Þórði.
76. mín
Sölvi hendir sér niður og fær aukaspyrnu. Emil Atlason ekki hrifinn af þessu hjá Sölva.
75. mín
InnEggert Aron Guðmundsson
ÚtCasper Bisgaard Sloth
75. mín
InnEmil Atlason
ÚtOliver Haurits
75. mín
InnÓli Valur Ómarsson
ÚtHalldór Orri Björnsson
74. mín
Adam Ægir með skot sem fer í Helga sem er fyrir innan og rangstaða dæmd.
70. mín
InnAdam Ægir Pálsson
ÚtPablo Oshan Punyed Dubon
69. mín
Ekki kannski besta úthlaupið hjá Arnari og það var bara eitt í stöðunni fyrir Helga.
MAAAARK!
Helgi Guðjónsson (stoðsending: Atli Barkarson)
Flott sending inn fyrir á Helga sem stakk sér innfyrir Daníel. Arnar Darri kemur út á móti en Helgi klárar listilega yfir markvörðinn.Ekki kannski besta úthlaupið hjá Arnari og það var bara eitt í stöðunni fyrir Helga.
68. mín
Víkingar í hröðu upphlaupi. Nikolaj á sprettinum, leggur boltann á Júlíus sem sendir áfram á Kristal. Kristall með skot en það fer yfir mark Stjörnunnar.
68. mín
Hilmar Árni með fyrirgjöfina, Oliver kemst í boltann en Sölvi nær að trufla hann og skallinn frá Oliver fer yfir mark heimamanna.
67. mín
Stjarnan á aukaspyrnu á vallarhelmingi Víkings. Hilmar gerir sig kláran.
65. mín
Veðrið orðið talsvert skárra núna en það var fyrir tíu mínútum síðar. Ennþá sami vindur en hætt að rigna.
65. mín
InnKwame Quee
ÚtViktor Örlygur Andrason
65. mín
InnHelgi Guðjónsson
ÚtLogi Tómasson
64. mín
Víkingur á hornspyrnu en Magnus skallar fyrirgjöfina frá.
Atli á svo skot sem fer framhjá.
Atli á svo skot sem fer framhjá.
63. mín
Það er kominn sjúkrabíll í Víkina til að flytja Harald upp á sjúkrahús.
61. mín
Oliver lætur vel finna fyrir sér þessa stundina og brýtur núna á Kára.
60. mín
Oliver nálægt því að detta í dauðafæri en Sölvi nær að bjarga og Oliver brýtur svo á fyrirliðanum.
59. mín
Stjarnan aðeins vaknað eftir þessi skrif mín áðan.
57. mín
Hilmar Árni með tilraun við vítateig Víkings. Fjórir Víkingar hentu sér fyrir skotið frá Hilmari en mér sýndist það fara í Kára sem vara aftastur af þeim.
Í kjölfarið var það Casper sem skaut framhjá.
Í kjölfarið var það Casper sem skaut framhjá.
56. mín
Atli með skot framhjá úr teignum en er dæmdur rangstæður.
56. mín
Pablo með fyrirgjöf sem gestirnir hreinsa. Heimamenn miklu líklegri til að bæta við en gestirnir að jafna leikinn.
55. mín
Kristall með skot sem fer af Eyjólfi og Arnar Darri ver svo í kjölfarið.
53. mín
InnArnar Darri Pétursson
ÚtHaraldur Björnsson
Halli virðist hafa fengið þungt högg.
52. mín
Gult spjald
Nikolaj Andreas Hansen
51. mín
Halli er að ljúka leik.
Börurnar eru mættar inn á og Stjarnan þarf að gera skiptingu.
Börurnar eru mættar inn á og Stjarnan þarf að gera skiptingu.
50. mín
Stjarnan á aukaspyrnu. Nikolaj fer í Halla inn á teignum, markvörðurinn heldur utan um höfuðið og þarf aðhlynningu. Nikolaj var að reyna komast í fyrirgjöfina frá Karli en fór í Halla.
49. mín
Ég er ekki viss hvort það er október eða júlí... litla veðrið.
47. mín
Víkingar leiða!
MAAAARK!
Nikolaj Andreas Hansen (stoðsending: Atli Barkarson)
Atli með fyrirgjöfina frá vinstri, finnur Nikolaj á fjærstögninni og Halli slær boltann einhvern veginn í netið.Víkingar leiða!
47. mín
Það er byrjað að hellirigna, grenjandi.
46. mín
Halli í smá brasi eftir hreinsun Eyjólfs. Halli grípur boltann í annarri tilraun.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Víkingur byrjar með boltann.
Engin breyting á liðunum.
Víkingur byrjar með boltann.
Engin breyting á liðunum.
45. mín
Hálfleikur
Allt jafnt þegar gengið er til búningsherbergja.
Víkingur talsvert meira með boltann en undramark frá Oliver kom gestunum yfir snemma í hálfleiknum.
Víkingur talsvert meira með boltann en undramark frá Oliver kom gestunum yfir snemma í hálfleiknum.
45. mín
45+4
Eyjólfur skallar fyrirgjöf frá vinstri út fyrir teiginn. Þar er Júlíus sem tekur á móti boltanum og lætur vaða. Halli ver boltann til hliðar og sókn Víkings rennur út í sandinn þegar Heiðar vinnur boltann af Nikolaj.

45+3
Sloth dæmdur rangstæður.
Sloth dæmdur rangstæður.
45. mín
45+1
Víkingar ná að skalla boltanum í burtu eftir hornspyrnu frá Hilmari.
Víkingar ná að skalla boltanum í burtu eftir hornspyrnu frá Hilmari.
45. mín
45+1
Hilmar Árni með skottilraun sem Þórður ver virkilega vel, í horn.
Fjórum mínútum bætt við!
Hilmar Árni með skottilraun sem Þórður ver virkilega vel, í horn.
Fjórum mínútum bætt við!
44. mín
Pablo fær aðhlynningu, Víkingur tekur innkast á vallarhelmingi Stjörnunni.
43. mín
Pablo liggur eftir, var tæklaður af krafti af Heiðari. Enginn hagnaður eða gult spjald frá Jóhanni þarna.
42. mín
Kári brýtur á Oliver í skallaeinvígi. Stjarnan á aukaspyrnu inn á vallarhelmingi Víkings.
41. mín
Eyjólfur skallar hornspyrnu Kristalst til hliðar. Í kjölfarið kemur fyrirgjöf frá hægri frá Viktori sem Nikolaj kemst í en skallar framhjá nærstönginni.
Stuðningsmenn heimamanna taka aðeins við sér.
Stuðningsmenn heimamanna taka aðeins við sér.
40. mín
Nikolaj reynir fyrirgjöf, Daníel stöðvar hana og boltinn fer afturfyrir. Víkingur á horn.
38. mín
Markið var virkilega verðskuldað miðað við gang leiksins.
36. mín
Allt jafnt. Sá markahæsti í deildinni getur ekki hætt að skora.
MAAAARK!
Nikolaj Andreas Hansen (stoðsending: Kristall Máni Ingason)
Logi hljóp yfir boltann, Kristall kom með flottan bolta inn á miðja teiginn, Nikolaj í frábæru hlaupi og stangaði boltann í netið.Allt jafnt. Sá markahæsti í deildinni getur ekki hætt að skora.
36. mín
Gult spjald
Elís Rafn Björnsson
Brýtur á Kristalli á hægri vængnum. Klárt gult.35. mín
Nikolaj og Halli eru staðnir upp og Halli spyrnir frá marki. Nikolaj fær svo að koma inn á en hann þurfti að byrja utan vallar þar sem hann fékk aðhlynningu.
34. mín
Halli og Nikolaj liggja eftir inn á vítateig Stjörnunnar. Stjarnan á aukaspyrnu. Hlupu saman þegar Halli fór í úthlaup.
33. mín
Logi Tómasson með hörkuskot, Halli hendir sér á þennan bolta og ver í horn!
33. mín
Eyjólfur brotlegur og Víkingar eiga aukaspyrnu á vallarhelmingi Stjörnunnar.
32. mín
Viktor með fyrirgjöf inn á Nikolaj sem er í dauðafæri en skallar yfir!!!!
30. mín
Logi með skot sem fer af varnarmanni og afturfyrir. Hornspyrna.
Sölvi fellur inn á teignum og Víkingar vilja víti!
Kristall vill svo fá aukaspyrnu en Daníel einfaldlega sýnir styrk og hirðir boltann við vítateig Stjörnunnar.
Sölvi fellur inn á teignum og Víkingar vilja víti!
Kristall vill svo fá aukaspyrnu en Daníel einfaldlega sýnir styrk og hirðir boltann við vítateig Stjörnunnar.
29. mín
Sölvi með hræðilega sendingu ætlaða Kára og Kári nær rétt að bjarga í innkast.
Víkingar halda boltanum á meðan Stjarnan reynir að nýta þá sénsa sem liðið fær eftir mistök heimamanna.
Víkingar halda boltanum á meðan Stjarnan reynir að nýta þá sénsa sem liðið fær eftir mistök heimamanna.
28. mín
Daníel Laxdal bjargar eftir mistök frá Eyjólfi. Kristall Máni gerði sig líklegan en Daníel hreinsar í innkast.
27. mín
Oliver reynir að setja boltann aftur yfir Dodda og nú af hægri kantinum og sá danski var talsvert nær. Skotið hins vegar vel framhjá.
27. mín
Víkingar vilja fá hendi á Heiðar þegar Atli átti fyrirgjöf sem fór í Heiðar inn á teignum.
26. mín
Kári bjargar, Þorsteinn gerði sig líklegan eftir skalla frá Oliver en Kári las þetta.
26. mín
Fín hugsun hjá Pablo að reyna stýra boltanum inn á Nikolaj en boltinn skaust aðeins of langt af Pablo eftir sendingu frá Viktori.
23. mín
Pablo með tilraunina en hún fer yfir mark gestanna.
22. mín
Víkingur á aukaspyrnu um metra frá vítateig Stjörnunnar. Halldor Orri braut á Loga alveg við teiginn. Hættulegur staður!
19. mín
Víkingur á aukaspyrnu inn á miðjum vallarhelmingi Stjörnunnar.
Pablo með boltann inn á teiginn, sýndist það vera Júlíus sem komst í þennan bolta og af Júlíusi fór hann afturfyrir. Markspyrna sem Stjarnan á.
Pablo með boltann inn á teiginn, sýndist það vera Júlíus sem komst í þennan bolta og af Júlíusi fór hann afturfyrir. Markspyrna sem Stjarnan á.
18. mín
Nikolaj lætur vaða en skotið fer yfir mark Stjörnunnar. Það var Logi sem fann Nikolaj við teiginn en sá danski náði ekki að halda skotinu niðri.
16. mín
Kári Árna í smá brasi, setur boltann á viðkvæman stað á Oliver.
Oliver náði skot á markið í kjölfarið en Doddi varði. Oliver er núna að jafna sig eftir þetta högg.
Oliver náði skot á markið í kjölfarið en Doddi varði. Oliver er núna að jafna sig eftir þetta högg.
15. mín
Kristall Máni lætur vaða utarlega úr teignum, fær boltann frá Nikolaj og skýtur með vinstir en skotið fer yfir markið hjá Halla.
15. mín
Heyrist vel í stuðningsmönnum Stjörnunnar, Silfurskeiðin styður við sína menn.
13. mín
Magnus krækir í aukaspyrnu á vallarhelmingi Víkings. Gestirnir leika boltanum til baka úr aukaspyrnunni og reyna að byggja eitthvað upp.
8. mín
Þetta var sturlað mark!!!!!
Oliver fékk boltann fyrir aftan miðju, fór framhjá Karli sýndist mér, sá að Doddi var framarlega í markinu og skoraði með skoti úr miðjuboganum á eigin vallarhelmingi!!!
Doddi reyndi að hlaupa til baka en skotið var það gott að hann átti ekki möguleika.
Fyrsta mark Olivers fyrir Stjörnunnar í sínum þriðja leik með liðinu!
VÁ!!!
MAAAARK!
Oliver Haurits (stoðsending: Magnus Anbo Clausen)
NEIIIII HÆTTTU!!!!!??????Þetta var sturlað mark!!!!!
Oliver fékk boltann fyrir aftan miðju, fór framhjá Karli sýndist mér, sá að Doddi var framarlega í markinu og skoraði með skoti úr miðjuboganum á eigin vallarhelmingi!!!
Doddi reyndi að hlaupa til baka en skotið var það gott að hann átti ekki möguleika.
Fyrsta mark Olivers fyrir Stjörnunnar í sínum þriðja leik með liðinu!
VÁ!!!
5. mín
Atli með flottan bolta inn á teiginn sem Nikolaj skallar á mark gestanna. Boltinn beint á Halla sem grípur.
2. mín
Stjarnan á hornspyrnu. Syrnan tekin stutt og Kári skallar fyrirgjöf Heiðars í burtu.
2. mín
Lið Stjörnunnar:
Haraldur
Heiðar - Daníel - Eyjólfur - Elís
Halldór Orri
Þorsteinn - Magnus - Casper - Hilmar
Oliver
Haraldur
Heiðar - Daníel - Eyjólfur - Elís
Halldór Orri
Þorsteinn - Magnus - Casper - Hilmar
Oliver
1. mín
Lið Víkings:
Þórður
Karl - Kári - Sölvi - Atli
Logi - Pablo - Júlíus - Viktor
Kristall
Nikolaj
Þórður
Karl - Kári - Sölvi - Atli
Logi - Pablo - Júlíus - Viktor
Kristall
Nikolaj
1. mín
Leikur hafinn
Stjarnan byrjar með boltann!
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn. Víkingur í rauðu og svörtu og Stjarnan í bláum treyjum.
Fyrir leik
Það er ellefu gráðu hiti, talsverður vindur en úrkomulaust þessa stundina í Víkinni.
Fyrir leik
Brynjar Gauti, varnarmaður Stjörnunnar, er ekki með vegna meiðsla sem hann varð fyrir gegn Leikni í síðasta leik. Halldór Smári er þá tæpur vegna meiðsla og er því á bekknum í dag.
,,Brynjar er frá eftir að hann var kýldur af Mána Austmann í síðasta leik. Hann fékk á hálsinn og á mjög erfitt með að tala. Hann getur ekki spilað," sagði Þorvaldur við Stöð 2 Sport fyrir leikinn í kvöld.

Arnar Gunnlaugsson er áfram með þá Adam Ægi, Helga og Kwame á bekknum en þeir mættu allir inn á með góðum krafti gegn Keflavík.

Rætt var um Kwame í Innkastinu á dögunum.
,,Í upphafi tímabils mátti hann ekki spila vegna pappírsvandamála, svo var það Covid og svo malaría. Við skulum ekki slá ryki í augu fólks, maðurinn hefur ekki getað neitt á tímabilinu. Hann hefur nánast verið dragbítur, ekki gefið boltann og byrjunarliðsleikirnir verið hreinasta hörmung," sagði Tómas Þór Þórðarson.
,,Þetta allt saman hafði ekki áhrif á Kwame Quee. Hann kom inn af krafti og gaf meira að segja boltann! Alltaf þegar hann gaf hann þá voru menn dauðafríir því menn eru svo hræddir við hann í 'einn á einn' að það kemur alltaf hjálparvörn og aðrir losna."

Byrjunarliðin eru klár:
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, gerir tvær breytingar frá síðasta leik (1-2 endurkomusigri gegn Keflavík í Keflavík). Logi Tómasson kemur inn fyrir Halldór Smára Sigurðsson og Július Magnússon kemur inn fyrir Erling Agnarsson sem tekur út leikbann.
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, gerir þrjár breytingar á sínu liði frá síðasta leik (2-0 tap gegn Leikni í Breiðholti). Brynjar Gauti Guðjónsson er ekki með, sennilega vegna meiðsla, og þeir Einar Karl Ingvarsson og Emil Atlason taka sér sæti á bekknum. Inn koma Oliver Haurits, Halldór Orri Björnsson og Eyjólfur Héðinsson.

Erlingur Agnarsson tekur út leikbann og er ekki með í dag.

Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna:
Víkingur vann leik liðanna í 3. umferð, 2-3.
Staðan í hálfleik á þeim leik var 2-2 en Júlíus Magnússon skoraði sigurmark Víkings á 51. mínútu leiksins.
Víkingur vann leik liðanna í 3. umferð, 2-3.
Staðan í hálfleik á þeim leik var 2-2 en Júlíus Magnússon skoraði sigurmark Víkings á 51. mínútu leiksins.

Fyrir leik
Jóhann Ingi Jónsson dæmir leikinn og þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gylfi Már Sigurðsson eru honum til aðstoðar.
Breki Sigurðsson er varadómari og Frosti Viðar Gunnarsson er eftirlitsmaður KSÍ.

Fyrir umferðina eru heimamenn í Víkingi í 2. sæti deildarinnar, stigi á eftir toppliði Vals með 26 stig úr fyrstu þrettán leikjunum.
Stjarnan hefur einnig spilað 13 leiki, liðið er með þrettán stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti í 10. sæti.
Stjarnan hefur einnig spilað 13 leiki, liðið er með þrettán stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti í 10. sæti.
Fyrir leik
Góðan daginn og veriði velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Víkings og Stjörnunnar í 14. umferð Pepsi Max-deildar karla.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 á Víkingsvelli í Fossvogi.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 á Víkingsvelli í Fossvogi.