Fotbolti.net
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Pepsi Max-deild karla
Kópavogsvöllur
Breiðablik
Breiðablik
3 - 0
HK
HK
Kristinn Steindórsson 51'1 - 0Davíð Ingvarsson 85'2 - 0Árni Vilhjálmsson 89'3 - 0
Dómari: Erlendur Eiríksson
Leik lokið!
Ívan Óli Santos með lokaskotið í þessum leik. Búið að flauta af bæði hér og í Keflavík.

HK ER FALLIÐ!

92. mín
Arnþór Ari með hræðilega aukaspyrnu.
91. mín
Fáum +4
HK
90. mín
InnÍvan Óli Santos
ÚtÁsgeir Marteinsson
HK
90. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtÁsgeir Börkur Ásgeirsson
Breiðablik
90. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtDavíð Ingvarsson
Breiðablik
90. mín
InnDavíð Örn Atlason
ÚtÁrni Vilhjálmsson
Breiðablik
90. mín
InnSölvi Snær Guðbjargarson
ÚtKristinn Steindórsson
Breiðablik
90. mín
InnFinnur Orri Margeirsson
ÚtAlexander Helgi Sigurðarson
Breiðablik
89. mín
MAAAARK!

Árni Vilhjálmsson (stoðsending: Jason Daði Svanþórsson)

Jason Daða er stungið innfyrir og þeir eru tveir á Arnar Freyr markmann.
Jason Daði leggur boltann á Árna Vil sem skorar auðveldlega.
88. mín
Arnþór Ari reynir skot að marki Blika en það er slakt og beint á Anton Ara.
Breiðablik
85. mín
MAAAARK!

Davíð Ingvarsson (stoðsending: Alexander Helgi Sigurðarson)

BLIKAR TVÖFALDA!!

Alvöru kúla út á væng þar sem Davíð Ingvars tekur við boltanum og keyrir inn á teig og setur hann þéttingsfast í fjærhornið.
79. mín
Höskuldur í tvöföldu dauðafæri en HK nær að bjarga!
77. mín
Það er alvöru dramatík í Keflavík en Skagamenn voru að komast yfir sem þýðir að eins og staðan er núna þá er HK að falla.
Breiðablik
73. mín
InnOliver Sigurjónsson
ÚtAndri Rafn Yeoman
72. mín
Ásgeir Marteins tekur spyrnuna og skotið yfir markið.
72. mín
HK fær aukaspyrnu á flottum stað.
HK
71. mín
InnJón Arnar Barðdal
ÚtÖrvar Eggertsson
67. mín
Hvorugt liðið er að ná að byggja upp neinar sóknir þessa stundina.
61. mín
Blikar með skemmtilega útfærða hornspyrnu sem skapar allskonar vandræði og Arnar Freyr ver frábærlega frá Viktori Erni en á endum fer boltinn af blika og afturfyrir.
HK
60. mín
Gult spjald

Martin Rauschenberg Brorsen

57. mín
Leikurinn stopp í örskamma þar sem Stefan Ljubicic og Alexander Helgi sýndist mér lentu í samstuði og Stefan Ljubicic virðist hafa blóðgast og þar að fara útaf og skipta um treyju.
Kemur inn í nýrri númerslausri treyju.

Blikar skora svo mark sem er dæmt af vegna rangstöðu.
53. mín
Höskuldur með marktilraun sem Arnar Freyr ver! Örlítið meira líf í þessu núna en í fyrri hálfleik.
Breiðablik
51. mín
MAAAARK!

Kristinn Steindórsson (stoðsending: Höskuldur Gunnlaugsson)

MAARK!!

Blikar eru komnir yfir!! Vandræðagangur í vörn HK skilar boltanum óvænt til Höskuldar í teignum sem leggur hann á Kidda Steindórs sem setur hann fagmannlega í hægra hornið.
46. mín
Við erum farin af stað aftur. Atli Arnarson á upphafssparkið í seinni hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
+3

Bragðdaufur fyrri hálfleikur að baki. Vonandi fáum við meira líf í þann síðari.
45. mín
Fáum +3 í uppbót.
44. mín
Það er smá hiti í mönnum hérna. Martin Rauschenberg og Árni Vil lenda saman og smá kítingur milli liðana sem fylgir í kjölfarið.
41. mín
HK með hættulega tilraun en yfir markið.
38. mín
Eftir að HK stuðningsmenn fóru að syngja um Víkinga þá hefur verulega dregið úr Blikum.
35. mín
HK aðeins að færa sig ofar á völlinn.
33. mín
HK í hörkufæri en skallinn frá Stefan Ljubicic afleitur!
32. mín
HK að komast í færi en Blikar stöðva sóknaraðgerðir þeirra.
Breiðablik
29. mín
Gult spjald

Viktor Karl Einarsson

Stöðvar skyndisókn HK með hendi.
27. mín
Anton Ari að leika sér að eldinum en Arnþór Ari náði ekki að nýta sér það. Vinnur þó hornspyrnu.
26. mín
Höskuldur með fínan sprett og sendir fyrir markið en því miður fyrir Blika var enginn mættur til ráðast á boltann og hann rennur í gegnum pakkann.
20. mín
Blikar reyna að finna opnanir á HK en HK eru þéttir fyrir.
15. mín
Ásgeir Marteins með skottilraun sem truflaði aðeins Anton Ara sem heldur þó boltanum.
13. mín
Höskuldur finnur Árna Vil sem á skot en varnarmenn HK ná að koma sér fyrir.
11. mín
Alexander Helgi með frábæran Zidane snúning og snýr af sér Ásgeir Börk.
11. mín
Jason Daði tekur hornið og leggur hann á Höskuld sem gefur boltann fyrir á Damir sem á skallan yfir markið.
10. mín
Blikar fá fyrsta horn leiksins.
6. mín
Blikar eiga fyrsta færi leiksins en frábær bolti fyrir markið finnur Höskuld sem á skot sem Arnar Freyr ver út í teig og hætta skapast en HK koma boltanum að lokum frá.
3. mín
Birkir Valur með ágætis bolta fyrir markið en Stefan Ljubicic ræðst ekki á hann og Anton Ari grípur þetta auðveldlega.
1. mín
Það eru Blikar sem eiga upphafsspark leiksins.Kiddi Steindórs sendir hann á Andra Rafn Yeoman.
Spila í átt að Sporthúsinu.
Fyrir leik
Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson er heiðraður fyrir leik. 200 mótleikir fyrir Blika.


Fyrir leik
Rennum yfir byrjunarliðin hjá liðunum í dag. Breiðablik gerir eina breytingu á sínu liði frá síðasta leik en inn kemur Andri Rafn Yeoman fyrir Gísla Eyjólfsson.
HK gerir þá þrjár breytingar á sínu liði en Birnir Snær Ingason er í banni eftir umdeilt rautt spjald í síðustu umferð, Ívar Örn Jónsson og Leifur Andri detta þá út líka en inn koma Örvar Eggersson, Martin Rauschenberg og Ásgeir Marteinsson.
Fyrir leik
LOKAUMFERÐIN BEINT Á X977

Hitað verður upp frá klukkan 12 þar sem Elvar Geir og Tómas Þór rýna í leikina. Allir leikirnir verða svo flautaðir á klukkan 14 og við verðum með menn á öllum völlum.

Elvar Geir, Benedikt Bóas og Rafn Markús verða í hljóðverinu og heyra í fréttamönnum á völlunum.

Allt í þráðbeinni en hægt er að hlusta á útsendingu Xins með því að smella HÉR

Fyrir leik
Ágúst Þór Ágústsson, Grassi, Framtíðin, þið ráðið hvað þið kallið hann, er spámaðurinn fyrir þessa umferð.

Breiðablik 3 - 1 HK
Blikar verða lengi í gang en sigla svo nokkuð þægilegum 3-1 sigri heim. Árni Vill setur 2 og Gummi Júl skrúfar upp hitann i restina, potar einu og þakkar traustið.
Fyrir leik
HK.

Staða: 10.sæti
Sigrar: 5(24%)
Jafntefli: 5(24%)
Töp: 11(52%)
Markatala: 21:36 (-15)

Markahæstu menn:

Stefan Alexander Ljubicic - 6 Mörk
Birnir Snær Ingason - 6 Mörk
Arnþór Ari Atlason - 3 Mörk
Jón Arnar Barðdal - 2 Mörk
* Aðrir minna


Fyrir leik
Breiðablik.

Staða: 2.sæti
Sigrar: 14(66%)
Jafntefli: 2(10%)
Töp: 5(24%)
Markatala: 52:21(+31)

Markahæstu menn:

Árni Vilhjálmsson - 10 Mörk
Kristinn Steindórsson - 8 Mörk
Viktor Karl Einarsson - 6 Mörk
Jason Daði Svanþórsson - 6 Mörk
Höskuldur Gunnlaugsson - 6 Mörk
* Aðrir minna.


Fyrir leik
Pepsi Max deild karla lítur svona út fyrir lokaumferðina.

1. Víkingur R 45 stig
2. Breiðablik 44 stig
3. KA 39 stig
4. KR 38 stig
5. Valur 36 stig
6. FH 32 stig
7. Stjarnan 22 stig
8. Leiknir R 22 stig
9. Keflavík 21 stig
10. HK 20 stig
11. ÍA 18 stig
12. Fylkir 16 stig

Ljóst er að Fylkismenn eru fallnir en spennan og baráttan er gríðarleg um hverjir falla með þeim og einnig hverjir verða Íslandsmeistarar og ná mögulegu evrópusæti.
Fyrir leik
Risastór leikur fyrir bæði félög þar sem allt er í húfi.
Heimamenn í Breiðablik geta enn orðið Íslandsmeistarar með sigri á HK en þá verða Leiknismenn að sækja úrslit gegn Víkingi í Víkinni og þá geta HK enn fallið ef ÍA nær í úrslit gegn Keflavík suður með sjó.
Fyrir leik
Góðan og margblessaðan daginn og verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Kópavogsliðana Breiðablik og HK.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.