Fotbolti.net
@BenniThordar Benjamín Þórðarson
Benjamín Þórðarson
Pepsi Max-deild karla
HS Orku völlurinn
Keflavík
Keflavík
2 - 3
ÍA
ÍA
Ástbjörn Þórðarson 45'1 - 0Óttar Bjarni Guðmundsson (sjm) 63'2 - 02 - 168' Alexander Davey2 - 271' Guðmundur Tyrfingsson2 - 375' Sindri Snær Magnússon
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Ótrúleg endurkoma Skagamanna!

Hvað réði úrslitum?

Þetta var rosalegur leikur! Skagamenn lentu 2-0 undir en um leið og þeir minnkuðu muninn þá kviknaði einhver ótrúleg trú sem færði þeim sigur!

Bestu leikmenn

1. Ástbjörn Þórðarson(Keflavík)

Var virkilega öflugur í þessum leik og skoraði þvílíkt draumamark

2. Sindri Snær Magnússon(ÍA)

Sindri var flottur á miðjunni hjá ÍA og skorðaði svo markið mikilvæga sem tryggði þeim sæti í efstu deild næsta sumar.

Atvikið

Þegar Skagamenn minnkuðu muninn! Það var ekkert á þeim tímapunkti sem benti til þess að Skaginn mundi vinna leikinn en þvílík endurkoma!

Hvað þýða úrslitin?

Björgunin ótrúlega tókst! Skagamenn halda sér í efstu deild með sigri í þremur síðustu leikjunum. Eitthvað sem enginn spáði þegar það voru 4 umferðir eftir.

Vondur dagur

Sindri markmaður verður að taka þetta á sig. Hann einfaldlega á að verja skotið þegar Skagamenn minnka muninn. Eftir það litu Skagamenn ekki til baka.

Dómarinn - 8

Flottur leikur hjá Vilhjálmi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.