SKÝRSLAN: Fylkir kveður Pepsi Max-deildina með stóru tapi
Hvað réði úrslitum?
Gæði Valsmanna fyrir framan markið. Skoruðu flott mörk. Fylkismenn voru í miklum vandræðum varnarlega sérstaklega í síðari hálfleik
Bestu leikmenn
1. Patrick Pedersen
Hann er með svakaleg gæði í teignum! Þrenna og er alltaf á réttum stað
2. Guðmundur Andri Tryggvason
Tvö mörk, og hættulegur í sóknarleik Valsmanna í dag.
Atvikið
Helgi Valur fékk heiðurskiptingu í síðari hálfleik. Hann leggur skóna á hilluna eftir þennan leik. Þvílíkur leiðtogi
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn enda á góðum sigri og verða í 5.sæti deildarinnar.
Fylkismenn falla með 16 stig og spila í Lengjudeildinni á næstu leiktíð
Vondur dagur
Vörn Fylkis var í miklum vandræðum og þá sérstaklega í síðari hálfleik.
Dómarinn - 8,0
Tríóið stóð sig vel í þessum leik, ekkert út á þá að setja


