Leik lokið!
Skagamenn bjarga sér!!
90. mín
InnIngimundur Aron Guðnason
ÚtMarley Blair
90. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtViktor Jónsson
85. mín
Það eru fimm mínútur eftir og eins og staðan er HK að falla.
85. mín
InnElias Alexander Tamburini
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
85. mín
InnJón Gísli Eyland Gíslason
ÚtSteinar Þorsteinsson
83. mín
ÁRNI MARÍNO!! Blair með lélegt skot að markinu og Árni næstum búinn að gefa mark!!!!
81. mín
Guðmundur Tyrfings með sskot að marki en Sindri ver og svo Gísli Laxdal með skot framhjá.
79. mín
InnChristian Volesky
ÚtHelgi Þór Jónsson
75. mín
MAAAARK!
Sindri Snær Magnússon
HVAÐ ER AÐ GERAST HÉRNA?????? SKAGAMENN ERU KOMNIR YFIR!!!! Þvaga í teignum og Sindri kemur Skaganum yfir!!!71. mín
MAAAARK!
Guðmundur Tyrfingsson
VONIN LIFIR!!!!! Skagamenn eru búnir að jafna!! Boltinn fyrir markið og Guðmundur Tyrfings að jafna!!68. mín
MAAAARK!
Alexander Davey
ÞAÐ ER VON!! Skagamenn að minnka muninn! Boltinn berst á Alex fyrir utan teig og hann tekur bara skotið og boltinn virtist breyta aðeins um stefnu en í markið fer hann! Þetta átti Sindri að taka í markinu.65. mín
Gult spjald
Viktor Jónsson
63. mín
MAAAARK!
Óttar Bjarni Guðmundsson (sjm)
SJÁLFSMARK!! Marley Blair með fasta sendingu fyrir markið og boltinn fer af Óttari Bjarna og í markið! Þetta er alvöru brekka fyrir Skagamenn!62. mín
Gult spjald
Sindri Þór Guðmundsson
61. mín
Dagur Ingi með skot að marki ÍA en beint á Árna í markinu
58. mín
Skagamenn aðeins að sækja í sig veðrið hérna. En þeir þurfa mark sem fyrst.
57. mín
InnGuðmundur Tyrfingsson
ÚtHákon Ingi Jónsson
54. mín
Gult spjald
Aron Kristófer Lárusson
52. mín
Keflvíkingar að byrja seinni hálfleikinn betur. HK komið yfir í Kópavoginum.
49. mín
Keflavík með flotta skyndisókn og Dagur Ingi reynir stunguna en aðeins of fast og boltinn aftur fyrir.
47. mín
Skagamenn fá hérna strax horn en yfir allan pakkann og aftur fyrir.
46. mín
Þá er þetta farið af stað aftur og núna eru það heimamenn sem byrja með boltann og sækja í átt frá Blue höllini.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur hjá okkur í Kef og heimamenn leiða 1-0 með rugluðu marki! Skaginn er á leiðinni niður eins og staðan er!
45. mín
MAAAARK!
Ástbjörn Þórðarson
ÞVÍLÍKA MARKIÐ!!!!! Heimamenn fá horn og boltinn berst á Ástbjörn fyrir utan teig og hann þrumar honum í vinkilinn fjær!!! Ruglað mark!45. mín
Gult spjald
Sindri Snær Magnússon
45. mín
Þrjár mín í uppbót hjá okkur
42. mín
Skagamenn að heimta víti en fá ekki. Rétt hjá Vilhjálmi.
38. mín
Skagamenn með skalla að marki en beint í varnarmann Keflavíkur
35. mín
Ísak með rosa sprett hérna en Sindri með geggjaða vörslu og liggur eftir.
34. mín
Dagur Ingi með flotta sendingu fyrir úr aukapspyrnu en enginn mættur
31. mín
Hákon Ingi í mjög góðu færi en nær ekki skoti á markið! Átti að gera betur
28. mín
Gísli Laxdal við það að sleppa í gegn en Sindri Þór með geggjaðan varnarleik.
27. mín
Heimamenn að gera sig líklega en boltinn framhjá.
26. mín
Keflvíkingar vilja víti en fá ekki!
25. mín
Skagamenn að fá sína sjöttu hornspyrnu.
17. mín
Skagamenn að fá fjórða hornið sitt í leiknum en engin hætta og Sindri handsamar boltann
15. mín
Víti misnotað
Steinar Þorsteinsson
SETUR BOLTANN YFIR!!! Alls ekki gott víti! Fór sjensinn þarna?14. mín
Víti fyrir Skagann!
11. mín
Sindri Snær Magnússon með skot fyrir Kef og varnarmnni og í slánna! Þarna mátti engu muna
10. mín
Skagamenn fá tvö horn til viðbótar en ná ekki að nýta það.
8. mín
Skagamenn fá horn og gera atlögu að marki Keflavíkur en engin alvöru hætta.
4. mín
Þetta byrjar rólega. Liðin að þreifa á hvert öðru. Stemmningin á vellinum er geggjuð
1. mín
Leikur hafinn
Þá er þetta farið af stað. Það eru Skagamenn sem byrja með boltann og sækja í átt frá Blue höllinni! Keflvíkingar að sjálfsögðu albláir og Skagamenn gulir og svartir! Game on!
Fyrir leik
Það eru bara flottar aðstæður í Kef í dag! Smá gola á annað markið, 6 stiga hiti og völlurinn flottur!
Fyrir leik
Það eru fimm mínútur í leik og spennan er áþreifanleg! stýkan að fyllast og fullt af Skagamönnum mættir! Þetta verður eitthvað
Fyrir leik
Það er ekki nema hálftími í þennan mikilvæga leik í Keflavík! Liðin eru að hita upp og það er spenningur í mannskapnum! fólk byrjað flykkjast í á völlinn!
Fyrir leik
LOKAUMFERÐIN BEINT Á X977
Hitað verður upp frá klukkan 12 þar sem Elvar Geir og Tómas Þór rýna í leikina. Allir leikirnir verða svo flautaðir á klukkan 14 og við verðum með menn á öllum völlum.
Elvar Geir, Benedikt Bóas og Rafn Markús verða í hljóðverinu og heyra í fréttamönnum á völlunum.
Allt í þráðbeinni en hægt er að hlusta á útsendingu Xins með því að smella HÉR

Dómari leiksins í dag er Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og honum til aðstoðar eru Bryngeir Valdimarsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson. Fjórði dómari er Helgi Mikael Jónsson og eftirlitsmaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.
Fyrir leik
Jói Kalli: Ætlum að vinna leikinn!
Þetta er mjög spennandi og áhugaverð lokaumferð. Við höfum komist í þessa stöðu með því að vinna síðustu leiki. Við erum komnir með þetta í okkar hendur sem er mjög ánægjulegt," sagði Jói Kalli.
Við ætlum okkur að vera áfram í deildinni. Við vitum að þetta verður erfitt, Keflvíkingar eru erfiðir heim að sækja en það er búinn að vera mikill stígandi í okkar leik og við ætlum að fylgja því eftir, það er ekki nokkur spurning."

Siggi Raggi:Mikilvægt fyrir félagið
Mér líst mjög vel á leikinn. Þetta verður hörku spennandi, við vonumst til að fá fleiri á völlinn en venjulega, það lítur aðeins betur með veðurspá," sagði Siggi Raggi.
Það er aðeins skrítið því við mætum þeim tvisvar í röð, mætum þeim líka í undanúrslitum bikarsins. Við vitum að þetta er stór leikur fyrir okkar stráka að spila. Við getum endað alls staðar frá 7. sæti niður í 11. sætið, fer eftir því hvernig síðasta umferðin fer. Við vonumst auðvitað til að vinna og ná að tryggja sætið okkar í deildinni. Það er ofboðslega mikilvægt fyrir félagið."

Allt undir í Sunny Kef
Það er enginn smá leikur sem við ætlum að fylgjast með Keflavík-ÍA, alvöru fallbaráttu slagur! Bæði lið geta ennþá fallið!!
Við skulum aðeins fara yfir fallbaráttuna vegna þess að hún er mjög áhugaverð og spennandi og þetta er ekki eini leikurinn sem skiptir máli þar. HK sem mætir Breiðablik á Kópavogsvelli getur líka fallið. En fyrir heimamenn er þetta mjög einfalt, ef þeir tapa ekki leiknum í dag þá er sæti þeirra í efstu deild öruggt fyrir næsta ár. Og þetta er í rauninni ekki flókið fyrir gestina heldur. Sigur hér í dag með einu marki tryggir þeirra sæti í deildinni fyrir næsta ár.En Skagamenn verða að vinna, jafntefli gerir ekkert fyrir þá. En þá verða Keflvíkingar verða komnir í hættu. En þá þarf HK að ná amk að ná stigi á móti Blikum og jafnvel vinna þann leik. Við fylgjumst að sjálfsögðu með gangi mála þar líka. Og einnig reynum við að flytja ykkur fréttir af baráttuni um titilinn en hún er eins og allir vita mjög spennandi. Ég segi bara gleðilega PepsiMax hátíð og góða skemmtun kæru lesendur!

Risa loka umferð í Pepsi Max
Heilir og sælir kæru lesendur og verið velkomin með okkur í beina textalýsingu frá HS Orku vellinum í Sunny Kef!
Heilir og sælir kæru lesendur og verið velkomin með okkur í beina textalýsingu frá HS Orku vellinum í Sunny Kef!