Leik lokið!
KR-ingar sækja þrjú stig til Eyja. Viðtöl og skýrsla koma á eftir. Þakka samfylgdina.
94. mín
Rautt spjald
Atli Hrafn Andrason
Atli Hrafn fer í glæfralega tæklingu og tekur Kristinn Jónsson niður.93. mín
Þarna var tækifæri! Guðjón Pétur með frábæran bolta inn fyrir á Andra Rúnar sem nær ekki að setja boltann á markið.
92. mín
Gult spjald
Kennie Knak Chopart
90. mín
Fjórum mínútum bætt við!
88. mín
Eyjamenn komast í álitlega stöðu en eru of lengi að athafna sig í teignum. Ná ekki skoti að marki en þarna var svo sannarlega tækifæri.
87. mín
InnAron Þórður Albertsson
ÚtAtli Sigurjónsson
86. mín
InnAtli Hrafn Andrason
ÚtTelmo Ferreira Castanheira
85. mín
Alex Freyr með skot fyrir utan teig en boltinn vel framhjá. Fimm mínútur eftir plús viðbótartími.
80. mín
InnTheodór Elmar Bjarnason
ÚtÆgir Jarl Jónasson
79. mín
Gult spjald
Ægir Jarl Jónasson
Stöðvar skyndisókn Eyjamanna.75. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtFelix Örn Friðriksson
75. mín
InnGuðjón Pétur Lýðsson
ÚtTómas Bent Magnússon
74. mín
Felix Örn er hér sestur á grasið, skipting í vændum hjá Eyjamönnum.
70. mín
Atli Sigurjónsson leikur með boltann inná teignum, skot hans beint á markið og Halldór Páll í engum vandræðum.
68. mín
Gult spjald
Stefán Árni Geirsson
Brýtur á Halldóri.66. mín
InnHalldór Jón Sigurður Þórðarson
ÚtJose Enrique Seoane Vergara
57. mín
KR-ingar að ógna. Kristinn Jónsson sendir boltann fyrir markið og þar er Kjartan Henry mættur. Skallinn fer hins vegar framhjá markinu. Gestirnir sterkari hér í upphafi seinni hálfleiks.
50. mín
Gult spjald
Finnur Tómas Pálmason
Sýndist að dómarinn hafi ekki ætlað að spjalda hann fyrir brotið en gula spjaldið fær hann fyrir það hvernig hann bregst við eftir að hafa heyrt í flautunni hjá dómaranum.48. mín
Gult spjald
Grétar Snær Gunnarsson
Eyjamenn fá aukaspyrnu eftir brot Grétars Snæs. En ekkert kemur úr spyrnunni.46. mín
InnStefán Árni Geirsson
ÚtAron Kristófer Lárusson
46. mín
InnPálmi Rafn Pálmason
ÚtÞorsteinn Már Ragnarsson
46. mín
InnKjartan Henry Finnbogason
ÚtStefan Alexander Ljubicic
45. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Sigurður Hjörtur flautar hér til loka fyrri hálfleiks. Öflug byrjun KR-inga skilaði marki strax á þriðju mínútu. Eyjamenn unnu sig jafn óðum inni í leikinn og jöfnunarmarkið var sjálfsmark Kristins Jónssonar. KR-ingar náðu svo fínum kafla rétt fyrir hálfleik sem skilaði marki Kennie Chopart. Þrátt fyrir að að þrjú mörk hafi verið skoruð í þessum fyrri hálfleik verður ekki sagt að leikurinn hafi verið hörku skemmtun.
42. mín
MAAAARK!
Kennie Knak Chopart
KR-ingar er komnir aftur yfir! Eiður Aron skallar fyrirgjöf Atla Sigurjónssonar beint fyrir fætur Kennie Chopart sem afgreiðir boltann snyrtilega í netið.40. mín
Gult spjald
Alex Freyr Hilmarsson
Of ágengur í pressunni og brýtur af sér.29. mín
MAAAARK!
Kristinn Jónsson (sjm)
Tómas Bent með flottan bolta inni í teiginn sem endar með því að Kristinn Jónsson skallar boltann í eigið net.28. mín
Gult spjald
Stefan Alexander Ljubicic
Brýtur af sér í vítateig Eyjamanna.19. mín
Eyjamenn hafa náð betri tökum á leiknum eftir því sem liðið hefur á. Þeir hafa þó ekki skapað sér nein alvöru færi að frátöldu færinu sem Andri Rúnar fékk í byrjun leiks.
14. mín
Leikurinn hefur heldur róast eftir nokkuð fjöruga byrjun. Liðin skiptast á að vera með boltann þessa stundina.
5. mín
Andri Rúnar kemst hér í fína stöðu en nær ekki að koma boltanum í netið. Laust skot fer rétt framhjá markinu.
3. mín
MAAAARK!
Ægir Jarl Jónasson
Þetta var ekki lengi gert, ég ætlaði að fara rita að KR-ingar litu betur út hér í byrjun leiks og þá kemur fyrsta markið. Ægir Jarl afgreiðir þennan með snyrtilegu skoti í fjærhornið.1. mín
Leikurinn er hafinn!
Fyrir leik
Þetta er allt saman að fara af stað hér í Eyjum. Leikmenn ganga hér inná völlinn í þessum skrifuðu orðum.
Fyrir leik
Rúnar Kristinsson gerir fjórar breytingar á liði KR frá markalausa jafnteflinu við KA. Út úr liðinu fara þeir Stefán Árni, Kjartan Henry, Pálmi Rafn og Theodór Elmar. Í þeirra stað koma þeir Grétar Snær, Ægir Jarl, Stefan Alexander og Þorsteinn Már sem fer beint inni í byrjunarliðið eftir komuna frá Stjörnunni.
Fyrir leik
Hermann Hreiðarsson gerir þrjár breytingar á liði Eyjamanna frá 3-3 jafnteflinu ævintýrlega í Keflavík. Stærstu tíðindin eru líklega þau að Guðjón Pétur Lýðsson fær sér sæti á varamannabekknum. Þá fer Halldór Jón Sigurðar einnig út úr liðinu og Breki Ómarsson er ekki í hóp í dag. Inn í lið Eyjamanna koma Jón Ingason, Sito og Tómas Bent.
Fyrir leik
Félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti!
Bæði lið hafa styrkt leikamannahópa sína síðasta sólarhringinn. Það var tilkynnt í gærkvöldi að Þorsteinn Már Ragnarsson væri genginn til liðs við KR frá Stjörnunni. ÍBV staðfesti svo nú eftir hádegið komu Elvis Bwomono. Elvis spilaði með Southend United á Englandi og þekkir Hermann Hreiðarsson vel til kappans enda var hann aðstoðarþjálfari liðsins um tíma.
Fyrir leik
Dómgæslan
Dómari leiksins er Sigurður Hjörtur Þrastarson, honum til aðstoðar eru þeir Bryngeir Valdimarsson og Sveinn Þórður Þórðarson. Varadómari er Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson og eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Georg Lárusson.
Fyrir leik
Eftir að hafa ekki komist á blað í fyrstu tveimur umferðunum skoraði Andri Rúnar Bjarnason sitt fyrsta mark á tímabilinu gegn Leikni í 3. umferð. Hann var svo aftur á skotskónum í jafnteflinu við Keflavík. Mikilvægt fyrir Eyjamenn að fá Andra í gang!
Fyrir leik
Staða liðanna
Tveimur sætum munar á liðunum og tveimur stigum, liðin hafa skorað jafn mörg mörk það sem af er tímabili en vörn KR-inga hefur staðið vaktina betur.
Eyjamenn sitja í 9. sæti með tvö stig, fimm mörk skoruð og níu fengin á sig.
KR er í 7. sæti með fjögur stig, fimm mörk skoruð og fjögur fengin á sig.
Fyrir leik
Talandi um enga draumabyrjun, það á einnig við um byrjun KR-inga á tímabilinu. Eftir öflugan 1-4 sigur á Fram í fyrstu umferð hafa fylgt tveir tapleikir og eitt jafntefli. KR fékk KA í heimsókn síðastliðinn sunnudag, þar var niðurstaðan markalaust jafntefli. KR-ingar náðu ekki að nýta sér það að vera manni fleiri stóran hluta leiksins. Stigin sem komin eru í hús í Vesturbænum eftir fjórar umferðir eru fjögur talsins og sætta KR-ingar sig því ekki við neitt annað en sigur hér í dag.
Fyrir leik
Eyjamenn eru með 2 stig að loknum fjórum umferðum. Engin draumabyrjun en lærisveinar Hermanns Hreiðarssonar hafa verið að spila sig betur saman með hverjum leiknum sem þeir hafa spilað á þessu tímabili. Fyrra stigið fengu þeir eftir 1-1 jafntefli við Leikni hér á Hásteinsvelli í 3. umferð. Annað stigið kom svo í ævintýralegum leik í Keflavík síðastliðinn laugardag þar sem lokatölur urðu 3-3. Eyjamenn fengu þar á sig jöfnunarmark í uppbótartíma.
Fyrir leik
Heil og sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Flautað verður til leiks hér í viðureign ÍBV og KR í 5. umferð Bestu deildar karla kl. 18:00.






