SKÝRSLAN: KR fyrsta liðið til að sigra Njarðvíkinga í sumar
Hvað réði úrslitum?
Það var mikill skellur fyrir Njarðvíkinga þegar Hallur Hansson setti boltann í netið á 84. mínútu eftir góða sendingu frá Theódóri Elmari Bjarnasyni. Markið kom upp úr þurru þar sem einstaklingsgæðin í liði KR gerðu herslumuninn.
Njarðvíkingar fengu sín færi en náðu ekki brjóta KR-ingana á bak aftur.
Bestu leikmenn
1. Varnarlína Njarðvíkur
Varnarlína Njarðvíkur eins og hún lagði sig átti magnaðan dag og gerðu vel í að halda aftur af KR og gáfu afspyrnu fá færi á sér.
2. Aron Kristófer Lárusson
Var lang hættulegasti maður KR í fyrri hálfleik og heilt yfir 90 mín sennilega bestur hjá KR.
Atvikið
Hallur Hansson brýtur á Einari Orra stuttu fyrir markið sem hefði átt að vera rautt spjald. Hefði því ekki átt að vera inni á vellinum til þess að skora sigurmarkið.
Hvað þýða úrslitin?
KR fer áfram í 8-liða úrslit í bikarnum á meðan Njarðvíkingar detta úr leik.
Fyrsta tap Njarðvíkur í sumar einnig staðreynd.
Vondur dagur
Stefan Alexander Ljubicic og Sigurður Bjartur Hallsson gerðu ekki mikið fyrir KR í kvöld og voru teknir útaf í hálfleik fyrir vikið.
Dómarinn - 4
Það að hafa ekki sent Hall Hansson í sturtu fyrir klárt ásetnignsbrot sem reyndist síðar vera hetja KR í leiknum dregur Pétur niður fyrir rauðu línuna í kvöld.
Mistök þarna sem höfðu síðar áhrif á úrslit leiksins.



