SKÝRSLAN: Fagmannleg frammistaða FH
Hvað réði úrslitum?
FH-ingar refsuðu fyrir mistök ÍR-inga. Það var helst þar sem maður sá mun á liðunum. ÍR-ingar voru samt flottir á löngum köflum í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Björn Daníel Sverrisson
Skoraði tvö í dag og var heilt yfir mjög líflegur og flottur
2. Steven Lennon
Margir sem komu til greina en ég set þetta á Lennon
Atvikið
Fyrstu fimm mínúturnar í seinni hálfleik þar sem FH skoraði tvívegis (þrisvar með einu rangstöðumarki) og breytti leiknum. Í stöðunni 4-0 var ekki aftur snúið
Hvað þýða úrslitin?
FH er komið í 8-liða úrslit í bikarnum en ÍR-ingar úr leik
Vondur dagur
Það er eiginlega ómögulegt að setja einhvern í þennan dálk. ÍR-ingar voru sprækir þrátt fyrir stórt tap.
Dómarinn - 9
Virkilega vel dæmt hjá dómurum leiksins. Geri engar athugasemdir við þeirra störf.



