Fotbolti.net
Kjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Mjólkurbikar karla
Kórinn
HK
HK
6 - 0
Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir
Hassan Jalloh 49'1 - 0Örvar Eggertsson 53'2 - 0Stefán Ingi Sigurðarson 71'3 - 0Stefán Ingi Sigurðarson 77'4 - 0Stefán Ingi Sigurðarson (víti) 84'5 - 0Stefán Ingi Sigurðarson 89'6 - 0
Dómari: Erlendur Eiríksson

SKÝRSLAN: Mjólkurbikarsferna

Hvað réði úrslitum?

Varamennirnir unnu þennan leik fyrir HK. Innkoma Örvars í hálfleik var kraftmikil og kom HK á bragðið. Eftir að Stefán Ingi kom inn var ekki möguleiki fyrir Dalvíkinga að koma sér inn í leikinn.

Bestu leikmenn

1. Stefán Ingi Sigurðarson

Hvað er hægt að segja. Ferna á tæpum 20 mínútum. myndi gefa honum 11 af 10 mögulegum í einkunn.

2. Örvar Eggertsson

Kom inn í liðið í hálfleik og gaf HK-ingum þennan auka kraft sem þeir þurftu til að brjóta ísinn virkilega ógnandi og skoraði gott mark með frábærum skalla.

Atvikið

Hassan Jalloh braut ísinn í upphafi seinni hálfleiks og eftir það var þetta allt annar leikur.

Hvað þýða úrslitin?

HK verður í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit.

Vondur dagur

Fyrri hálfleikurinn var frábær hjá Dalvík en það var allt annað að sjá til liðsins í þeim seinni.

Dómarinn - 7

Ekkert út á Erlend að setja. Hugsanleg vítaspyrna í fyrri hálfleik sem HK vildi fá er það eina sem hægt er að setja spurningarmerki við.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.