SKÝRSLAN: HK efstir eftir dramatískar loka mínútur
Hvað réði úrslitum?
HK byrjuðu leikinn mjög vel og voru komnir yfir í fyrri hálfleik sem drap smá Þrótturum. Þróttur gaf samt HK-ingum alvöru leik í loka mínútum leiksins, þegar þeir skora og ná næstum því að jafna mínútu seinna.
Bestu leikmenn
1. Örvar Eggertsson
Skorar fyrsta mark leiksins. Örvar skapar mikið af færum og var lang besti maðurinn á vellinum.
2. Ásgeir Marteinsson
Skapaði mikla hættu og átti stoðsendingu í fyrsta markinu.
Atvikið
Það voru mörg atvik í þessum leik. Mikil læti komu þegar HK fengu víti, Þróttarar vildu meina að brotið væri of ''soft,, til þess að vera víti. Svo vildu Þróttur fá víti þegar það var brotið tvisvar á leikmann, en þeir fengu dæmt fyrra brotið sem var rétt fyrir utan teig. Svo voru loka mínútur leiksins æsi spennandi og náði Þróttur næstum því að jafna leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur liggur áfram í neðsta sæti deildarinnar með 5 stig. HK fara upp í efsta sæti deildarinnar með 25 stig.
Vondur dagur
Spilamennska Þrótts var ekki eins góð og þegar þeir sigruðu gegn Grindavík. Þrátt fyrir að þeir spiliðu vel, allavega í seinni hálfleik, náðu þeir ekki að klára þau færi sem þeir sköpuðu sér. Hans Mpongo, sem átti góðan leik gegn Grindavík, var ekki mjög sjáanlegur í dag.
Dómarinn - 6
Fínn dæmdur leikur hjá Agli og teyminu hans. Það var mikið öskrað á hann frá hliðarlínunni og sumt af því var skiljanlegt. Fannst samt Stefán vera rangstæður þegar HK fengu víti. Svo voru nokkur atvik sem mér fannst Egill ekki gera réttu ákvarðinar.



