SKÝRSLAN: Stjarnan vann sannfærandi sigur gegn máttlausum Skagamönnum
Hvað réði úrslitum?
Varnarleikur Skagamanna var ekki upp á marga fiska í dag og Stjörnumenn nýttu sér það. Skagamenn voru hægir í sínum aðgerðum en Stjörnumenn ekki.
Bestu leikmenn
1. Emil Atlason
Frábær í dag skoraði eitt mark og lagði upp tvö. Átti stóran part í öllum mörkum Stjörnunnar í kvöld. Vann boltann í þriðja markinu og gaf á Ísak. Í öðru markinu byrjar hann sóknina og á lokasendinguna.
2. Ólafur Karl Finsen
Skoraði eitt besta mark sem ég hef séð og var flottur á miðjunni.
Atvikið
Markið hjá Ólafi Karli Finsen verður líklegast mark tímabilsins. Markið er þannig að Haraldur Björnsson neglir boltanum fram þar sem Emil Atlason snýr í fyrstu snertingu á Köhler, Emil gefur boltann og fær hann svo aftur síðan tekur Emil hælspyrnu á Ólaf Karl Finsen sem lyftir boltanum upp og tekur Hjólhestaspyrnu nánast í samskeytin.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að ÍA er í botnsæti deildarinnar en Stjarnan er enn í 4. sæti deildarinnar einu stigi frá KA.
Vondur dagur
ÍA liðið í heild sinni átti vondan dag, en leikurinn hefði getað breyst hefði Kristian Lindberg klárað dauðafærið sem hann fékk beint eftir fyrsta mark Stjörnunnar.
Dómarinn - 8
Mér fannst Erlingur dæma þennan leik af prýði engin sýnileg mistök sem ég tók eftir.




