Fotbolti.net
Besta deildin
@BaldvinBorgarsBaldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Leiknir R.
Leiknir R.
Besta-deild karla
Domusnovavöllurinn
Fínar aðstæður, lítill vindur, gott hitastig og skýjað.
0 - 5
KA
KA
0 - 123' Nökkvi Þeyr Þórisson0 - 225' Elfar Árni Aðalsteinsson 0 - 357' Ásgeir Sigurgeirsson 0 - 459' Nökkvi Þeyr Þórisson0 - 561' Sveinn Margeir Hauksson
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Leiknismenn leiddir til slátrunar á heimavelli

Hvað réði úrslitum?

Eftir fyrsta markið virtist bara eitt lið vera á vellinum og KA-menn gengu á lagið, hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk og jafnvel verið búnir að afgreiða leikinn í fyrri hálfleik.

Bestu leikmenn

1. Daníel Hafsteinsson (KA)

Daníel var sturlaður á miðjunni í dag, algjör umferðarstjóri leiksins, bæði búandi til færi og flottar sóknir ásamt því að koma sjálfum sér í flotta sénsa og takandi mjög góð skot utan af velli, Danni í þessum ham er illviðráðanlegur og var hann óheppinn að skora ekki í leiknum en Viktor Freyr varði nokkrum sinnum mjög vel.

2. Nökkvi Þeyr Þórisson (KA)

Gjörsamlega frábær að venju svosem, skorar tvö góð mörk og óheppinn að klára ekki þrennuna. Hér mætti svosem setja alla aðra leikmenn KA líka en Hrannar var stórkostlegur, Sveinn Margeir öflugur, Dusan frábær, Ásgeir gríðarlega góður og svo lengi mætti telja.

Atvikið

Rauða spjaldið á Binna Hlö, leikurinn löngu farinn og algjör óþarfi að bæta við kæruleysi og rauðu spjaldi sem kostar Leikni bara leikbann í næsta leik fyrir einn þeirra reynslumesta leikmann. Tapar boltanum til Jakobs og rífur hann niður og fékk réttilega seinna gula.

Hvað þýða úrslitin?

KA fylgir fast á hæla Víkinga í þriðja sætinu. Leiknismenn eru enn að berjast á botnsvæðinu en þó ekki í fallsæti.

Vondur dagur

Mikkel Dahl, Mikkel Jakobsen, Binni Hlö, Daði Bærings og Emil Berger eru allt lykilmenn í Leiknisliðinu sem allir áttu mjög svo dapra frammistöðu og Leiknismenn hafa ekki efni á því að hafa svona marga öfluga leikmenn í vandræðum.

Dómarinn - 8

Flottur leikur hjá teyminu, yfir litlu sem engu að kvarta!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.