Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetEyþór Daði Kjartansson
ÍBV
ÍBV
Besta-deild karla
Hásteinsvöllur
3 - 2
Valur
Valur
Halldór Jón Sigurður Þórðarson 30'1 - 0Halldór Jón Sigurður Þórðarson 61'2 - 02 - 175' Aron Jóhannsson2 - 278' Aron JóhannssonHalldór Jón Sigurður Þórðarson 90'3 - 2
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Fyrsti sigur ÍBV kominn í hús.

Hvað réði úrslitum?

Hvorugt liðið var að spila eitthvern sambabolta en fremstu 4 hjá ÍBV voru mikið að fá boltann á bakvið vörn Vals sem áttu í miklum erfiðleikum með hraðan í ÍBV liðinu.

Bestu leikmenn

1. Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Þrenna í fyrsta skipti sem framherji síðan hann kom í ÍBV. Hann byrjaði út á kanti en skipti við Guðjón Erni snemma leiks og fór þá upp á topp með Arnari Breka. Öll mörkin rosalega svipuð og er viss um að varnarmenn Vals séu ekki sáttir með varnarleik sinn í þessum mörkum.

2. Aron Jóhannsson

Erfitt að setja hann ekki hingað. Valsliðið varð miklu betra eftir innkomu Arons og hann skoraði 2 mörk á mjög stuttum tíma. Alex Freyr, Eiður Aron og Arnar Breki voru líka hrikalega góðir í dag og eiga alveg skilið að vera hérna.

Atvikið

Vítaklúðrið hjá Felix. Tek ekkert af Frederik Schram sem varði mjög vel en á 89. mínútu að klúðra víti í stöðunni 2-2, sérstaklega fyrir lið sem er sigurlaust, það er pirrandi. Sem betur fer fyrir ÍBV þá breytir þetta vítaklúður engu núna.

Hvað þýða úrslitin?

Fyrsti sigur ÍBV í ár og nú eru þeir komnir með 8 stig í 11.sæti deildarinnar og eru bara 2 stigum frá næstu liðum. Valur eru í 5. sæti en geta endað daginn í 6. sæti ef Keflavík vinnur sinn leik.

Vondur dagur

Margir sem eiga heima hér í dag, erfitt að taka einhvern einn út en Hólmar Örn á fyrsta markið þar sem hann lætur Alex Freyr taka af sér boltann og síðan brýtur hann á Arnari Breka í vítinu. Sóknarmenn ÍBV létu varnarmenn Vals líta mjög illa út oft í dag en sóknarleikur Vals var ekki mikið skárri fyrstu 60 mínúturnar en hann varð betri eftir að Aron og Patrik komu inná. Væri hægt að taka nánast alla sem byrjuðu inná hjá Val hérna inn en kannski er bara best að gefa þjálfarateymi Vals þennan titil í dag.

Dómarinn - 7

Gerir vel í að dæma víti, tók full langan tíma í að taka ákvörðunina en komst að réttri niðurstöðu eftir smá spjall við aðstoðadómara.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.