Fotbolti.net
Besta deildin
@gummi_aaGuðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
ÍBV
ÍBV
Besta-deild kvenna
Hásteinsvöllur
Þrusuflottar
3 - 1
KR
KR
0 - 112' Marcella Marie BarbericHanna Kallmaier 76'1 - 1Rebekka Sverrisdóttir (sjm) 83'2 - 1Þórhildur Ólafsdóttir 91'3 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Sagan var önnur er í seinni hálfleikinn var komið

Hvað réði úrslitum?

KR-ingar misstu einbeitinguna á síðasta stundarfjórðungnum og Eyjakonur nýttu sér það til hins ítrasta. Eyjakonur gátu ekki neitt, og þá meina ég ekki neitt í fyrri hálfleik, en frammistaðan var mun betri í þeim seinni og mér fannst miklu meiri og betri andi í liðinu. Skiptingar hjá Jonathan Glenn voru mjög góðar og varamennirnir komu sterkar inn.

Bestu leikmenn

1. Ameera Abdella Hussen (ÍBV)

Virkilega góð inn á miðsvæðinu. Átti eina lúxussendingu í fyrrri hálfleik sem hefði átt að skila marki og á svo mikið í öðru markinu.

2. Olga Sevcova (ÍBV)

Þvílík gæði sem hún býr yfir. Hún ætti að vera komin með mun fleiri stoðsendingar í sumar því hún hefur sannarlega búið til fjölmörg góð færi sem hafa farið forgörðum.

Atvikið

Markið sem varamaðurinn Hanna Kallmaier skorar. Það breytir leiknum. Einstaklingsframtak og glæsilegt mark sem byrjar endurkomu Eyjaliðsins.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV siglir lygnan sjó í fjórða sæti. Afskaplega fínt tímabil hjá þeim hingað til og klárlega eitthvað sem þær geta byggt á fyrir framhaldið. KR er á botninum en það er nóg eftir og þær geta klárlega haldið sér uppi - þær þurfa bara að spila allar 90 mínúturnar líkt og þær gerðu lengst af í fyrri hálfleiknum í dag.

Vondur dagur

Laufey Björnsdóttir átti erfiðan dag hjá KR og leit ekki vel út í mörkum tvö og þrjú hjá ÍBV. Madison Elise Wolfbauer og Sandra Voitane, tvær af framherjum ÍBV, voru þá frekar týndar lengst af.

Dómarinn - 8

Með góð tök og góða stjórn, aldrei í neinum vandræðum fannst mér. Vel dæmdur leikur!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.