Fotbolti.net
Besta deildin
@kjartanleifursKjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Besta-deild kvenna
Samsungvöllurinn
Rigning og rok. Alvöru hauststemning.
Stjarnan
Stjarnan
2 - 2
Breiðablik
Breiðablik
Gyða Kristín Gunnarsdóttir 57'1 - 01 - 166' Vigdís Lilja Kristjánsdóttir1 - 282' Chante Sherese Sandiford (sjm)Aníta Ýr Þorvaldsdóttir 89'2 - 2
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Bæði lið svekkt eftir jafntefli

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan réðin lögum og lofum á vellinum mest allan leikinn en lengi vel leit út fyrir að Blikar myndi sigla heim sterkum sigri sem væri smá meistarabragur á en Aníta kom inn af bekknum og tryggði stigið fyrir Garðbæinga.

Bestu leikmenn

1. Jasmín Erla Ingadóttir

Jasmín var frábær í dag. Allt í öllu í sóknaraðgerðum Stjörnunnar og lagði upp bæði mörkin í dag og hefði með smá heppni getað komist sjálf á blað.

2. Agla María Albertsdóttir

Blikar geta prísað sig sæla að vera búnir að endurheimta Öglu því að hún er virkilega góður leikmaður og í dag sást það á henni að hún er virkilega gæðamikil. Síógnandi og átti aukaspyrnuna sem annað markið kom upp úr.

Atvikið

Breiðablik taldi sig vera að keyra yfir Arnarneshæðinni með 3 stig en allt kom fyrir ekki þegar Aníta Ýr Þorvaldsdóttir sem var nýkominn inn á skoraði eftir fínan undirbúning frá Jasmín Erlu.

Hvað þýða úrslitin?

Bæði lið fá eitt stig og halda sér í sínum sætum. Blikar í öðru en Stjarnan í því þriðja.

Vondur dagur

Blikar voru ekki sterkari aðilinn í dag en ef liðið ætlar að vinna þessa deild þá verða þær að halda út í leikjum eins og þessum.

Dómarinn - 7

Ekkert út á dómarann að setja í dag. Auðveldur leikur að dæma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.